Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1990, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.05.1990, Blaðsíða 14
okkur réðust blaðamenn og ljósmyndarar. Var þar tekin mynd af flokki okkar, og kom hún í einu blaðinu um kvöldið. Blaðamenn þessir vildu fá fréttir frá íslandi og íslensku stúdentalífi, og veittum við þeim nokkra úrlausn, en fjörvi fegnir urðum við, er við náðum í gegnum þann hreinsunareld og til bústaða okkar og gátum hresst okkur eftir ferðavolkið. Það þurfti ekki að fara í nokkrar grafgötur. til þess að sjá, að stúdentamótið var aðalviðburður dagsins í Stokk- hólmi. Öll blöðin fluttu þá þegar greinar um það og myndir af komu útlendinganna. Einn hlutur skyggði þó á gleði Svíanna, og var það, að skömmu áður höfðu hinir finnskumælandi Finnar neitað að taka þátt í mótinu nema þeir mættu mæla á finnska tungu. Við kröfu þeirri gat stjórn mótsins eigi orðið, því að telja mátti víst að fæstir þeirra er á mótinu sátu, skildu tungu Finna. Sátu því finnsk-Finnar heima að 5 undan- teknum. Allir aðrir Finnar er mótið sátu, voru af sænska flokknum. Eins og eðlilegt var, féll Svíum atvik þetta mið- ur. Þjóðirnar hafa haft mikið saman að sælda, og Svíum er áhugamál að halda góðu samkomulagi. Einkum var þetta óheppilegt á svona móti, sem einkum var ætlað til að treysta bræðraböndin meðal norrænna þjóða. Fluttu blöð- in öll greinar um mál þetta og hörmuðu fjarveru Finna. Mótið var sett 1. júní kl. 4 í hljómleikahöll Stokkhólms (Konserthuset). Er það forkunnarmikil bygging og fögur. Komu þar saman allir þátttakendur mótsins og margt annarra gesta. Konungsfjölskyldan sænska og margt annað stórmenni landsins var þarsaman komið. Krónprinsinn var vemdari mótsins. Alls mun þar hafa verið hátt á annað þúsund manns. Allir voru þar hátíðaklæddir og báru stúd- entar húfur sínar. Var það svo við öll hátíðahöld mótsins. Sjálf setningarathöfnin hófst, er konungur með fylgdar- liði sínu gekk inn í salinn. Lék þá hljómsveitin „Stockholms Akademiska Orkesterförening“ konungssöng Svía og hlýddu menn honum standandi. Er hjómsveitin hafði leik- ið annað lag, steig forseti mótsins med. kand. Dag Knutsen í ræðustólinn og bauð gestina velkomna með nokkrum vel völdum orðum. Lagði hann einkum áhersluna á það, að menn kæmu hér saman, til að kynnast persónulega og hnýta þau vináttu- og tryggðabönd, er flyttu norrænu þjóðirnar hverja nær ann- arri. Því næst söng söngflokkur stúdenta nokkur lög, og að því búnu steig Nathan erkibiskup Söderblom í stólinn, til að halda aðalhátíðarræðuna. Erkibiskupinn er hinn ágætasti ræðumaður, bæði fyndinn og skörulegur, enda var ræðu hans tekið með fögnuði miklum. — Má vel taka undir með „Stockholms Dagblad“, sem harmaði það, að ræða hans hefði ekki náð eyrum alls æskulýðs Norðurlanda. Eigi eru tök á að rekja ræðu þá hér, en þess eins má geta, að biskup brýndi fyrir mönnum, að þrátt fyrir það að menn elskuðu sitt eigið land og þjóð, mætti það aldrei gleymast, að þeir tilheyrðu öðru langt um stærra ríki, ríki mannúðarinnar sem nær yfir öll lönd og þjóðir. Lauk hann ræðu sinni með því, að bjóða gestina velkomna til þessa alheimsríkis. Er hljómsveitin hafði leikið „Landkjending“ eftir Grieg mæltu framsögumenn hinna fjögurra þjóðanna nokkur orð. Komu þeir fram eftir stafrófsröð: Danmörk, Finnland, ísland og Noregur. Á eftir hverri ræðu voru viðeigandi þjóðsöngvar sungnir af öllum er kunnu og hlýddu menn þeim standandi. Fyrir hönd íslands talaði þar Þorkell meistari Jóhannes- son. — Mælti hann á sænsku og sagðist vel. Þótti Svíum gott að hann talaði tungu þeirra. Setningarathöfninni lauk með söng, og sungu allir er gátu „Sjung om studentens lyckliga dag“ meðan þeir gengu út úr salnum, en hljómsveitin lék undir. Frá hljómleikahöllinni hröðuðu menn sér sem mest þeir máttu til „Grand Hotel Royal“. Var þeim þar búin veisla ein kostuleg, í veitingasal hótelsins og má marka þar af stærð þess, að um 1000 manns sat þar í einu að borðum. Hver maður hafði kort yfir salinn, og var sæti hans markað þar á. Varð sumum allmikil leit þar úr sem von var. Vel var veitt og rausnarlega í veislu þessari, skorti þar eigi mat eður drykk né gleðibrag góðan. Ræður voru þar margar fluttar en eigi verður innihald þeirra rakið hér, en flestar snerust þær meira eða minna um norræna samvinnu og bræðralag. Ólík öllum hinum ræðunum var sú, er fil. kand. Nils Bohman flutti fyrir minni kvenna. Var ræða sú í ljóði og hin fyndnasta, en ekki óblandið lof um ágæti kon- unnar, en að þeirri niðurstöðu komst ræðumaður að, Fortjuserskan pá Oslos promenader er lika skön som hon som nöter sko pá Esplanaden eller Vesterbro; og flickan som i Stockholm har sitt bo ár i förtrollande förmága lik behagens vákterska i Reykjavik. Er lokið var ræðum og söng, og borð voru upp tekin, hófst hin verulega sameining þjóðanna í svifléttum dansi eftir nýtísku „jazzmúsík“. Loks kl. 2 var hófinu slitið og hver hélt heim til sín meðan máninn varpaði töfraskini yfir stræti og torg. Laugardagurinn 2. júní var helgaður fyrirlestrum og umræðum. — Hófust fyrirlestrar þeir kl. 10 f.m. og voru haldnir í kvikmyndahúsi því er Palladium nefnist. Voru þar alltaf höfuðstöðvar mótsins. — Fyrsta fyrirlesturinn flutti háskólarektorinn í Stokk- hólmi, próf. Sven Tunberg. Var hann um „Nordisk enhetstanke i svunnen Tid“. Annan fyrirlestur flutti rektor tekniska háskólans próf. Tore Lindmark um „Teknik och Kultur“. Að fyrirlestrum þessum loknum söfnuðust menn til morgunverðar. Var mönnum skipt niður í þrjá gildaskála í borginni til þeirra hluta. Kl. 3 síðdegis hófust umræður á ný i „Palladium“ um þátttöku norrænna stúdenta í Alþjóðastúdentasamvinnu. Framsögumaður var cand. polit. H. Græssler. Skýrði hann frá sögu og stefnu alþjóðastúdentasam- 158 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.