Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1990, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.05.1990, Blaðsíða 30
Þórey Árnadóttir, f. 21. júní 1858, d. vestanhafs 1947. Þórunn Jósefsdóttir frá Bergskoti í Grindavík, f. 6. október 1898, d. 2. febrúar 1986. Dcetur áttu þau Björn Ólafur og Þórey, tvœr: Svandís Jóelína, fædd 1889, fór til Bandaríkjanna (Norður-Dakota) með móður sinni, giftist þar Kristni Halldórssyni, sem tók sér nafnið Ármann. Þau eignuðust fimm börn. Svandís lézt hjá dóttur sinni í Kaliforníu. Anna yngsta barn þeirra hjóna, fæddist5. júní 1892. Þórey fluttist til Sauðárkróks og bjó þar, unz hún fór búferlum til Reykjavíkur 1907. Sambýlismaður hennar var Sigurgeir Kristjánsson, fæddur á Siglufirði 28. nóvember 1860. Þau eignuðust einn dreng, Björn Ólaf 24. nóvember 1901. Hann fór með móður sinni vestur um haf trúlega á stríðsárunum fyrri. - Anna Ólafsdóttir varð seinni kona Stefáns Jónssonar (1884-1959) bónda á Brimnesi við Dalvík. Dóttir hennar og Stefáns er Eyvör Jónína, fœdd 20. apríl 1928, kona Hallgríms Antonssonar húsasmíða- meistara á Dalvík. Þau eiga sex börn. Anna Ólafsdóttir var á vegum dóttur sinnar og tengdasonar síðustu árin. Hún lézt 1979. Þá er þar til að taka, sem frá var horfið, að rekja feril Arna Davíðssonar og Þórunnar konu hans svolítið frekar, en um hann er raunar lítið vitað. Þau voru blásnauð alla tíð, og mun hafa skilið með þeim hjónum um eða laust fyrir 1870. Þegar Þórey dóttir þeirra er fermd 1872, er Þórunn skrifuð ekkja í Moldarhúsum. Árni bóndi hennar var þó lifandi, en alls óvíst, hvar hann dvaldizt, má vera að hann hafi þá þegar hafið siglingar, þótt sióferðasaga sú, sem hér er skráð, hefjist sumarið 1875. Arni minnist ekki einu orði á fortíð sína þar. Árið 1880 er Þórunn lausa- kona í Moldarhúsum og sögð ,,lifa á sníkjum“; óvenjulegt, að prestar komist svo að orði. Hún lézt södd lífdaga 27. júlí 1882. Árni lézt sveitarómagi á Hliðsnesi 23. maí 1891. Ekki veit sá er þetta ritar, hvort handritið er með hendi Árna Davíðssonar. Þó bendir ýmislegt til, að svo sé. Skriftin má kallast góð, ekki hvað sízt, ef um viðvaning er að ræða. En svo er að skilja af frásögninni, að Árni hafi numið ,,dönsku, skrift og reikning“ í Færeyjum. Trú- lega mun hann þó hafa kunnað að draga til stafs áður. Réttritun á handritinu er hins vegar mjög ábótavant, sömu orðin stafsett sínu sinni hvað, og skal það ekki rakið. Hér er reynt að þjóna tveimur herrum. Handritið birt orð- rétt (nema hvað tvítekningar eru felldar niður), en farið bil beggja, hvað stafsetningu áhrærir. Hæpnar orðmyndir fá að halda sér, svo og setningaskipun og, sem fyrr segir, hvergi vikið við orðum. Af þessu leiðir, að hætta er á, að lesendur flokki sitthvað sem prentvillur, sem eru það ekki að réttu lagi. Kristmundur Bjarnason. Ferðasaga Á.D.S. Þá ég var í Reykjavík sumarið 1875, kom þangað skipið Júlía og með því hestakaupmaðurinn Mr. Askan. Hann keypti hér 60 hross. Þeir höfðu komið 3 á skipinu, en það var of fátt eða allt það minnsta, til að fara landa í milli, þess vegna varð kapteinninn, sem var Mr. Askan sjálfur, að verða sér út um að fá 2 menn, því nú þurfti ekki einungis að gæta segla og passa upp á, heldur einnig hrossin. Við 2 Islendingar, ég og annar, að nafni Símon, réðumst þá í að fara með skipi þessu. Okkur þótti það fýsilegt að koma til Englands snöggva ferð. Okkur var heitið sæmilegum launum, og þar með sagði kapteinninn, að hann mundi koma hér aftur til hestakaupa, eitthvað að 2 mánuðum liðnum, og þá gætum við orðið, ef við vildum, hér eftir, og ekki lengur verða með sér. Við fórum svo og lögðum frá landi, það var mánudag- inn í 14. viku sumars, eða 22. júlí 1875. Við fengum hag- stæðan norðaustan vind hvassan, ég kenndi strax sjósótt- ar, því ég var óvanur sjó. Við sigldum 6 mílna fart um vagtina. Þetta gekk mánudaginn, en þegar morgnaði lygndi svo, að ekki blakti hár á kolii, en þá vorum við komnir suður fyrir land. Aftur hvessti á þriðjudaginn, en þótt góður byr væri, máttum við ekki sigla fulla fart, því þá byltust hrossin í eina beðju í lestinni. Ekki hafði mér enn batnað sjóveikin. Ég var allur al- 174 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.