Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1990, Síða 24

Heima er bezt - 01.05.1990, Síða 24
Jónas Jónsson. ráði og dáð. En sjálfsagt á hún og sjálf þátt í vinsældum sínum, meiri og minni.“ Tveimur dögum síðar sagði Þorsteinn Briem landbún- aðar- og kennslumálaráðherra í ræðu á fullveldishátíð stúdenta: „Vér verðum að muna að tveir stúdentar, sem komnir eru að embættisprófi, þeir eyða ekki öllum dögum í karp og rifrildi. . . Hið sama verður þjóðin að gera nú. Hún verður að beita öllum kröftum að markinu — því marki að leysa prófþrautina með sigri og sæmd.“ Eftir mikil átök varð að ráði að fresta lausn kjördæma- málsins til næsta árs, 1933. Ásgeir Ásgeirsson hafði meiri áhuga á samkomulagi í því en flestir flokksbræður hans. Hann taldi það eitt helsta verkefni stjórnar sinnar að ná um þetta skaplegum sáttum, sem og tókst, en nú skal lítillega vikið að tveimur málum sem hefðu getað reynst stjórnar- samstarfinu hættuleg og jafnvel banvæn. Eins og áður var fram komið, hafði Jónas Jónsson verið dómsmálaráðherra í ráðuneytum Tryggva Þórhallssonar, en dómsmálaráðherra fór þá með það ákæruvald sem síðar var falið saksóknara ríkisins. Hermann Jónasson var ungur og vaskur lögfræðingur, harðskeyttur Framsóknarmaður, bæjarfulltrúi flokksins í Reykjavík, og þar hafði Jónas Jónsson skipað hann lög- reglustjóra 1929. Eftir þáverandi kerfi fór hann með vald sem nú er í höndum borgardómara. Magnús Guðmundsson, sem tók við dómsmálaráð- herraembættinu af Jónasi Jónssyni, var starfandi lögfræð- ingur og hæstaréttarmálflutningsmaður í Reykjavík jafn- framt þingmennskunni. Hann hafði verið kærður fyrir meint ósæmileg skipti af gjaldþrotamáli erlends heildsala sem leitað hafði lögfræðilegrar aðstoðar hans. Þessi kæra hafði lengi legið óafgreidd hjá dómsmálaráðherra Jónasi Jónssyni, en áður en hann léti af embætti, hreinsaði hann til á skrifborðinu sínu og ákvað þá meðal annars að þessi kæra skyldi ganga sinn gang, en nú vildi svo til að hún var ekki aðeins gegn málflutningsmanni og þingmanni, heldur ein- mitt þeim manni sem var að taka við dómsmálaráðuneyt- inu af sjálfum honum. Þetta vissu þingmenn auðvitað, þegar stjórnarskiptin voru að gerast, og gerðu þingmenn Alþýðuflokksins veður út af því, að maður með kæru yfir sér væri gerður að dómsmálaráðherra. Ásgeir Ásgeirsson sagði við umræður á alþingi að Jón Baldvinsson (formaður Alþýðuflokksins) vissi vel að Magnús Guðmundsson væri ekki frekar sakamaður en Jón sjálfur. Magnús hafði ekki skap til að afturkalla kæruna, þótt hann hefði nú vald til þess. Gekk hún fram, og hinn 9. nóvember kvað Hermann Jónasson upp dóm í málinu, en í þeim dómi fékk sjálfur dómsmálaráðherrann 15 daga fangelsi við venjulegt fangaviðurværi sem var heldur fá- breytt í þá daga. Magnús Guðmundsson gaf þá út yfirlýsingu, þar sem hann sagði, að þótt hann teldi þennan dóm rangan, þá hefði hann ákveðið að segja þegar af sér, því að hann liti svo á að í ráðherrasæti ætti enginn að sitja sem hlotið hefði áfellisdóm hjá löglegum dómstóli, meðan þeim dómi væri ekki hnekkt af æðra dómstóli. Jafnframt lýsti hann yfir því, ....... .......J Æm m M: Jón Baldvinsson. 168 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.