Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1995, Qupperneq 10

Heima er bezt - 01.02.1995, Qupperneq 10
fæddur 1958, og Vigfús, fæddur 1962. Þessir þrír nefndu bræður voru miklir sjósóknar- og aflamenn, og var mikill skaði, þegar tveir þeirra fórust í inn- siglingunni við Eyrarbakka þann 7. september 1983. Bát- ur þeirra, Bakkavík, sem var 18 tonna eikarbátur, steytti á skerinu Brynka í innsigling- unni til Eyrarbakka. Af sker- inu kom einn brotsjór, sem setti bátinn á hliðina, og svo komu aðrir tveir í kjölfarið, sem hvolfdu honum. Bræð- urnir þrír komust út úr bátn- um og velktust um í köldum sjónum góða stund. Svo tókst Vigfúsi að bjarga bræðrum sínum, Þórði og Sigfúsi, um borð í björgunarbát. Yfir björgunarbátinn reið svo annað brot, sem sprengdi hann. Þórður sást aldrei eftir þetta, Sigfús reyndi að synda í land og Vigfúsi tókst að lokum að komast á tætlunum af björgunarbátnum til lands. En Sigfúsi tókst ekki að synda í gegnum brimgarðinn, og hefur lík hans aldrei fundist. Lík Þórðar fannst hins vegar rekið á Skötubót, vestan Ölfusárósa, nokkrum dögum síðar. Vigfús Markússon er í dag kvæntur maður, á eitt barn og er sjómaður á bát sem gerður er út frá Þorlákshöfn. Ibúðarhús Asa og Aðalheiðar heitir Ásgarður og er vest- arlega í Eyrarbakkaþorpi. Eitt glæsilegasta hús staðar- ins. Ljósm: Sig. Bogi Er forsjóninni ósáttur „Eg er forsjóninni alltaf ákaflega ósáttur vegna þessa slyss. Þarna missti ég tvo syni mína, en mér fannst ég satt að segja vera búinn að taka út minn toll í þessum efnum: að missa föður minn átta ára gamall. Þá missti ég Þórð Þórisson, systurson minn, í sjóslysi á vetrarvertíðinni 1976, þegar báturinn Hafrún ÁR héðan frá Eyrarbakka fórst með allri áhöfn. Þetta slys og missirinn varð mér mikið áfall. Þú kemst aldrei í nálægð við þann andlega mótbyr, sem ég lýsi hér fyrir þér. Hver maður ætti í raun að sturlast samkvæmt öllu eðlilegu. Ekki síst var þetta mér þungbært, því að við feðgamir vorum alla tíð afar samrýndir - og við fjórir „ Við Allý mœttumst með kýrnar á miðri leið ogfórum sitt í hvora áttina. En við sáum brátt að betra vœri að vera sam- ferða og höfum lengst affarið í sömu átt. “ Aðalheiður Sig- fúsdóttir, eiginkona Asa, við eldavélina og bakar grautar- klatta. Ljósm. Sig. Bogi. 46 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.