Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1995, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.02.1995, Qupperneq 25
Námsmeyjar á Löngumýri 1950 (eldhúshollið). Frá vinstri, efri röð: Sigrún Hróbjartsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir og Erla Jónsdóttir úr Skagafirði, Svanhildur Kjartansdóttir og Vigdís Björnsdóttir úr Strandasýslu, Sigríður Jónsdóttir, Skagafirði, Lilja Amadóttir, Strandasýslu. Neðri röð: Olafía Salvarsdóttir, ísafjarðarsýslu, Kristín Þórarinsdóttir, N- Múlasýslu, OlöfP. Hraunfjörð, Reykjavík, Lilja Sigurðardóttir, matreiðslukennari frá Víðivöllum í Skagafirði, Arnfríður Hermannsdóttir, Isafjarðarsýslu, Svava Benediktsdóttir, N-Múlasýslu, Guðlaug P. Hraunfjörð, Reykjavík. Ólafur frá Hellulandi, laxeldis- ráðunautur með ineiru, hélt fyrirlest- ur og lagði út af því að breyta ull í fat og mjólk í mat. Hve mikilsvert það væri, að við kynnum að vinna úr afurðum okkar. Einu sinni sem oftar, þegar við vorum í kirkju í Glaumbæ, var ferm- ing. Við fórum á tveimur bílum í kirkjuna. Við systurnar vorum svo heppnar að vera í seinni bílnum, en í honum voru söngkonurnar okkar, þær Maggý Kristjáns, Lilja Árna- dóttir, Lauga Guðmundsdóttir og Lilla á Patró. Það skipti engum tog- um, okkur var boðið í fermingar- veislu að Grófargili. Þar var sungið og spilað á gítar, farið í leiki og við skemmtum okkur konunglega. Við vorum 40 námsmeyjar, þar af 17 Skagfirðingar. Að vera á heima- vistarskóla tel ég mjög þroskandi. Þetta er eins og ein stór fjölskylda, náið samband myndast milli kennara og nemenda, vinátta sem getur varað alla ævi. Lröken Ingibjörg hafði mikinn metnað fyrir hönd okkar nemenda sinna. Hún kenndi okkur sjálfsögun, þroskaði með okkur skilning á fögr- um listum, góðum bókum og um- framt allt hinu góða í mannlegu eðli. Lröken Björg kenndi okkur allar listir með nálinni, bæði útsaum og fatasaum. Hún var snillingur á því sviði. Hún var okkur líka raungóð og gaf sér ætíð tíma til að sinna vanda- málum okkar. Við fengum farkennara, Sigríði Böðvarsdóttur, sem kenndi okkur leikfimi og þjóðdansa. Margrét Jó- hannsdóttir hjúkrunarkona kenndi okkur meðferð ungbarna og hjálp í viðlögum. Árni Jónsson kenndi okk- ur söng, og svo kom Jón Bergsson myndskeri frá Akureyri og kenndi okkur út- skurð. Erfitt var að fá útskurðar- tæki, og kom hann með regn- hlífarjárn, sem við notuðum með góðum ár- angri. Ekki má gleyma vefnað- inum, en hann kenndi Jóhanna Jóhannsdóttir frá Hellissandi. Margir eru undrandi í dag á þeirri framsýni, sem einkenndi skól- ann á Löngumýri. En níu mánaða nám í húsmæðraskóla veitti engin réttindi. Það var ekki fyrr en 1984, að Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir kom því inn í samninga Starfsmannafé- lagsins Sóknar, að húsmæðraskóla- menntun skyldi metin sem 4 ára starfsaldur. Vorkoman hefur ætíð verið okkur Islendingum tilhlökkunarefni, og vorið 1950 varð okkur öllum, sem dvöldum á Löngumýri, ógleyman- legt. Það kom til okkar með fæðingu lítils drengs, sem ein skólasystir okk- ar eignaðist. Ingibjörg sýndi hinni ungu móður mannkærleika og elsku sem væri hún hennar eigin dóttir. Við fyrrverandi nemendur Hús- mæðraskólans á Löngumýri stofnuð- um nemendasamband árið 1965 og höfum rætkað með okkur vináttu og haldið tengslum við þær fröken Ingi- björgu og Björgu, sem nú dveljast í Skjóli í hárri elli. Húsmæðraskólinn á Löngumýri. Heima er bezt 61

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.