Heima er bezt - 01.02.1999, Blaðsíða 30
Ég hripaði á blað þessa vísu, sem getur passað við
óskorun Kóra:
Trega blandinn tíminn leið,
tíðarandinn svalur.
Ýmis vandi allra beið,
Öm er grandvar haiur.
Og Petra fra Kvíabekk tekur óskoruninni svona:
Trausti er aiitaftakmark sett,
tœpt því mörgu að trúa,
því er ver en reynist rétt,
ráðamenn oft Ijúga.
Brynjólfur Bergsteinsson fra Hafrafelli, svarar með eft-
irfarandi:
Tíminn áfram tifar greitt,
tœknin hraðar fer,
því enginn geturyfirieitt,
undan vikið sér.
Traust mun árið töivuvœtt,
troðna fórum sióð.
Um „Intemet" í alheimsgœtt,
ólgar vísdóms blóð.
Lótum við svo lokið að sinni en minnum á heim-
ilsifangið:
Heima er bezt,
Ármúla 23,
128 Reykjavík.
Mkíktai
^ 0
Djúpsteiktur fiskur
6 msk. olía,
2 laukar, saxaðir,
1 msk. mulin kóríanderfræ,
3 græn cílipiparaldin, kjörnuð og söxuð,
1 tsk. salt,
1 tsk. pipar,
750 g. þorskflök, roðflett og skorin í litla bita,
2 msk fínsöxuð kóríanderlauf.
Soppa:
125 g. gramhveiti,
1/2 tsk. chíliduft,
1/2 tsk. salt,
1 egg, þeytt,
7 msk. vatn.
Hitið 3 matskeiðar af olíu á pönnu, bætið við lauk
og steikið þar til mjúkur. Hrærið saman við kóríander,
chílipiparaldinum, salti og pipar og síðan fiskbitun-
um. Steikið í 2 mínútur, setjið lok á og mallið við lít-
inn hita í 2 mínútur. Losið um fiskinn með gaffli og
bætið við söxuðu kóríanderlaufunum.
Takið pönnuna af og lagið deigið.
Sigtið hveiti, chíliduft og salt í skál. Bætið við eggi og
vatni og þeytið í kekkjalausa soppu. Látið bíða í 30
mínútur en blandið þá fiskinum saman við.
Hitið það sem eftir er af olíunni á pönnu og látið
soppuna falla af skeið niður í feitina. Steikið á báðum
hliðum þar til gullið.
Látið síga af þeim og haldið heitum á meðan lokið
er við að steikja.
Hlaðvarpinn
framhaid afbls. 44
Þama er gott dæmi um það hvernig búnar eru til
þarfir. Fötin eru að skila þér nákvæmlega því sem til
var ætlast, þó er þeim hent til hliðar í stórum stíl, vegna
litar og tísku.
í svona lífsdansi verður ræktun innri gilda mannsins
mikilvægur þáttur og jafnframt það sem gefur lífinu
verulegt gildi. En því miður verður ekki séð að þau at-
riði séu rekin áfram af jafnmiklum krafti og þau sem tí-
unduð hafa verið hér að framan, og því getur þurft
talsverða staðfestu og kannski svolítið víðari sýn á lífið
og raunveruleg gildi þess, svo virkileg hamingja og inn-
eign í lífsbókinni skapist.
Og um það snýst, held ég, lífsferð okkar að miklu
leyti. Hvemig okkur tekst að vinna úr og þroska hið
„innra líf," í gegnum umhverfi og aðstæður. Það verður
sá auður og sú vinna sem mestu skilar, ekki bara þegar
„upp verður skorið," heldur einnig á meðan þú ert að
inna hana af hendi.
Með bestu kveðjum,
Guðjón Baldvinsson.
7 0 Heima er bezt