Æskan - 01.11.1957, Blaðsíða 37
Jólablað Æskunnar 1957
ið og teikna eitthvað í kring um skærin,
svo að úr ])ví verði mynd. Þetta er hreint
ekki erfitt, eins og ])ið getið séð á mynd-
unum hér, sem maðurinn lánaði okkur.
4. Hvað er í körfunni?
Þessi leikur er skemmtilegur og maður
verður að hafa dálitla glóru í kollinum, ef
maður vill ná góðum árangri. Maður nær
sér í innkaupakörfu og lætur í hana sitr-
ónu, gamlan vettling, liarðsoðið egg, votan
svamp, kartöflu, gulrót og sex eða sjö aðra
hluti. Siðan á að breiða yfir körfuna; allir
fá blýant og blað og svo eiga bátttakendur
að þreifa hver á eftir öðrum i körfunni i
eina minútu og skrifa svo upp, hve marga
hluti þeir gálu þckkt og munað eftir.
Hringjaspil í jólaleyfinu.
Þetta er ágætt innanhússspil, ef það er
ekki haft of stórt og fyrirferðarmikið. Það
er auðveit hverjum laghentum dreng eða
stúlku að búa það til.
Þú þarft tréplötu um 15x15 sm á stærð
og viðartein, sem getur verið allt upp í ’/í
m á hæð. Pinnann verður þú að tálga til,
svo hann komist í gatið, sem þú borar á
tréplötuna. Pússaðu plötuna með sand-
pappfr, svo að enginn fái flisar i fingurna.
Siðan þarftu að útbúa nokkra liringi. Þú
þarft í minnsta lagi 3, en skemmtilegra er
að liafa þá mun fleiri. Hægt er að búa þá
til úr mjóum kaðli, sem þú vcfur saman.
Einnig er hægt að nota viðigreinar, þær
eru vel beygjanlegar og hægt er að binda
þær saman með seglgarni.
Svo geturðu sjálfur ákveðið, hvernig ]>ú
villt spila þetta, en auðvitað er vandinn
að koma sem flestum hringjum á trétein-
inn.
Hvers vegna að kaupa
dýra jólastjörnu,
þegar þú getur sjálfur búið til aðra úr
pappa eða krossviði, sem bæði er ódýrari
og endingarbetri?
Þessa fallegu jólastjörnu skerðu út úr
þykkum pappa eða þunnum krossviði. Þú
getur sjálfur teiknað stykkin A, B og C i
réttri stærð og hana getur þú sjálfur
ákveðið; 10—15 sm frá oddi til odds er
ósltöp hæfilegt. Rifurnar, sem skornar eru
inn í, skulu vera af sömu breidd og þykkt
og efni stjörnunnar. Rifan i A á að ganga
inn i löngu rifuna í stylski B (berðu lim
á kantana). Þú verður að búa til tvö
stykki af C, sem eiga að fara i styttri rif-
urnar á B.
Þegar limið er þurrt, berðu lím eða
gólflakk á alla stjörnuna og dreifir svo
brons- eða silfurgliti yfir hana. Svo gcr-
irðu gat i einhvern oddinn og liengir
stjörnuna upp i glugga. Þar er næstum
alltaf einhver súgur, svo að stjarnan verð-
ur alltaf á einhverri hreyfingu og hún
verður fallega glitrandi að sjá, þegar glit-
ið endurkastar ljósgeislunum.
Hvar er hálshindið?
Helga og Jón eru ný trúlofuð. Þau
sitja hér í kvikmyndahúsi, en í miðri
sýningu verður Helga vör við, að Jón
hefur tapað hálsbindi sínu. Getið þið
nú ekki hjálpað þeim að finna það
áður en sýningunni verður lokið. Tök-
um okkur nú öll til og finnum háls-
bindið, það á að finnast hér í þessu
blaði ef þið leitið vel. — Ráðningar
sendist blaðinu fyrir 15. janúar 1958.
Þrenn verðlaun, sem verða útgáfu-
bækur ÆSKUNNAR, verða veitt fyr-
ir rétt svör. — Senda skal svör við
hverri þraut sér á blaði.
Fyrstti jólahortin.
Talið er, að jólakort séu upp runnin i
Englandi. Á rikisstjórnarárum Önnu
drottningar, sem sat að völdum frá 1704—
1714, tíðkaðist það, að börn sendu foreldr-
um sinum og ættingjum kort með sýnis-
horni af rithönd sinni. Voru kort þessi
oft með útskornum röndum og myndum,
sem börnin lituðu sjálf. Sennilega var það
þó ekki meginhlutverk þessara korta að
flytja jólakveðjur eins og nú tiðkast, held-
ur öllu fremur til að sýna hverjum fram-
förum sendandinn tæki i hinni göfugu rit-
list frá ári til árs. Á hinn bóginn var það
siður fullorðna fólksins að senda ættingj-
um og vinum jólabréf.
Fyrsta jólakortið í svipaðri mynd og nú
tiðkast var gefið Viktoríu drottningu árið
1845. Gefandinn var frægur málari. Á kort-
inu var olíumálverk, og mun listamaður-
inn hafa þrykkt nokkur afrit af þvi handa
vinum sinum. Árið eftir bar svo til, að að-
alsmanni einum i Bretlandi vannst ekki
timi til að skrifa jólabréf sín eins og
venjulega. Fékk hann þá þekktan lista-
mann til að gera jólakort fyrir sig. Lista-
maðurinn gerði mynd af fjölskyldu, við
jólaborðið, og þrykkti myndina á nokkur
kort, sem hann handlitaði siðan, og voru
þau að því leyti lík jólakortum barnanna.
Áletrunin á þessum kortum var mjög lík
þvi, sem gerist enn þann dag I dag. Á þvi
stóð aðeins: Gleðileg jól og farsælt kom-
andi ár!
173