Æskan - 01.11.1957, Blaðsíða 40
Jólablað Æskunnar 1957
SSSS2S2S2S2SSSSSSSSSSSSS8SSSSSSS2SSS2SSS2SSSSSSSSS2S2SSS
Erla Þorsteinsdóííir.
Ein allra vinsælasta dægurlagasöngkona
okkar í dag mun vera Erla Þorsteinsdóttir.
Hún er 24 ára gömul, dóttir þeirra merkis-
hjónanna á Sauðárkróki, Ingibjargar Kon-
ráðsdóttur og Þorsteins Sigurðssonar. Eria
er gift dönskum manni og eiga þau lijón
tvö börn. Hún hóf söngferil sinn í Dan-
mörku, en fyrst kom hún opinberlega fram
hér heima á skemmtikvöldvökum Góð-
templara að Jaðri. Erla hefur nokkrum
sinnum sungið í útvarp og á skemmti-
stöðum i Danmörku. Alls hefur hún sungið
inn á 10 plötur, 8 íslenzkar og 2 danskar.
Síðasta plata hennar kom út á síðasta
sumri og á henni eru annars vegar Bamli-
ínó og hins vegar Tango for two, hvort
tveggja með íslenzkum texta. Hljóðfæra-
verzlunin Fálkinn í Reykjavík gefur plötur
hennar út.
W
Hattkur MLorthen.s»
Haukur Morthens er einn af vinsælustu
dægurlagasöngvurum landsins. Hann hef-
Haukur
Morthens.
Heims um ból helg eru jól,
signuð mœr son Guðs ól,
frelsun mannanna, jrelsisins lind,
frumglceði Ijóssins, en gjörvöll mannhind
meinvill í myrkrunum lá :,:
Heimi i hátið er ný,
himneskt Ijós lýsir ský,
liggur í jötunni lávarður heims,
lifandi brunnur hins andlega seims,
:„ Konungur lifs vors og Ijós. :,:
★
★
★
Heyra má himnum í frá
englasöng: „Allelújá
Friður á jörðu, þvi Faðirinn er
fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér
:,: samastað Syninum hjá. :,:
Sveinbjörn Egilsson.
★
★
★
■ ■■■■■■■■■■■■■■. ■■■■(!■■■■■■■■■ ■ ■ ■ ■ ■ ■■■■■■■■■■■■■"■ ■"■■"b ■■■■■■
ur nú sungið í 13 ár opinberlega á skemmti-
stöðum og i útvarpinu.
Fyrst kom hann fram opinberlega 12 ára
í Drengjakór Reykjavíkur, sem Jón ísleifs-
son söngkennari stjórnaði. Árið 1944 tók
Haukur að syngja á skemmtunum. Hann
lærði prentiðn og stundaði hana, þar til
fyrir 4 árum, að liann helgaði sig ein-
göngu söngnum. Á síðasta ári birtist í einu
dagblaði Reykjavikur viðtal við söngvar-
ann, þar sem hann ræðir um vín og tóbak.
Hér koma smá glefsur úr þvi viðtali.
„Ég hef aldrei bragðað vín,“ segir Hauk-
ur. „Það hefur aldrei komið fyrir að mig
liafi langað í áfengi, — ég lief aldrei þurft
að grípa til áfengis eða neinna deyfilyfja,
— ég hef ekki heldur reykt eina einustu
sígarettu á ævinni. — Þegar ég tólc að
sækja dansleiki 17—18 ára gamall, var það
oft að félagar mínir smökkuðu áfengi, og
sumir fullmikið, lentu jafnvel í ryskingum
og rifu föt sin. Fyrsta veturinn dansaði
ég ekki, en sat og hlustaði á músikina.
Þegar ég hitti félaga mína á mánudögum,
vissu þeir stundum eklti livað hafði gerzt
á laugardagskvöldunum, þeir höfðu orðið
svo miður sín, — þá óleit ég slíka hegðun
ekki mikla skemmtun. Og þegar ég tók að
syngja á samkomum, var oft gleðskapur,
og menn hafa komið til mín og boðið mér
að vera með og dreypa á, en ég hef aldrei
þegið þær veitingar."
Haukur Morthens hefur sungið inn á
fleirri hljómplötur en nokkur annar is-
lenzkur dægurlagasöngvari hefur gert til
þessa. Útgefandi hefur verið hljómplötu-
verzlunin Fálkinn h.f. í Reykjavík.
176