Æskan - 01.11.1957, Blaðsíða 44
Jólablað Æskunnar 1957
Nú rennur jólastjarna
og stafað geislum lœtur
á strák i nýjum buxum
og telpu á nýjum kjól.
Hve kertaljósin skina
og sykurinn er sœtur
og söngurinn er fagur,
er börnin halda jól.
Og mitt i allri dýrðinni
krakkakríli grcetur
— það kemur stundum fyrir,
að börnin gráta um jól —
en bráðum gleymist sorgin,
og barnið liuggast lœtur
og brosir gegnum tárin
sem fifill móti sól.
Þá klappa litlar hendur
og dansa fimir fœtur,
og fögrum jólagjöfum
er dreift um borð og stól.
Nú rcetast margar vonir
og draumar dags og nœtur.
Ó, dœmalaust er gaman
að lifa svona jól.
Og ellin tekur hlutdeild
i helgi jólanœtur,
er heimur skrýðist Ijóma
frá barnsins jólasól.
En innst i hugans leynum
er litið barn, sem grcetur —
og litla barnið grœtur,
að það fcer engin jól.
Örn Arnarson.
Molbúa saga.
Einu sinni grófu Molbúar brunn; kom
])á upp heill haugur af mold við gröftinn.
Þeir fóru þá að ráðgast um, hvað þeir
ættu að gera við svona mörg vagnhlöss nf
mold, því að ekki mætti moldin sitja
þarna og vera fyrir. Þeir, sem hyggnastir
voru, stungu upp á því, að þeir skyldu
grafa stóra holu og moka svo moldinni
ofan i hana; á þetta féllust þeir allir, en
litlu siðar spurði einn þeirra töluvert efa-
blandinn: „Já, en hvað eigum við að gera
við moldarhrúguna, sem upp úr þeirri
liolu kemur?“ En hyggni Molbúinn svaraði:
„O, við verðum eklfi í vandræðum með
það; við gröfum bara nýja holu svo stóra,
að hún taki hrúgurnar úr hinum báð-
um 1“
T ÓMnstu.nda.h.'Völd.
í október sl. liófst tómstundastarfsemi í
vegum Ungtemplara I.O.G.T. í Reykjavík.
Leiðbeint er í föndri, framsögn og skák.
Kunnáttufólk leiðbeinir i hverri grein. Auk
þess hafa húsakynni reglunnar á Frikirkju-
vegi 11 V'við opin til frjálsra afnota 3
kvöld vikunnar, og er þar iðkað borðtenn-
is, bobb og skák, og auk þess hafa þar
farið fram kvikmyndasýningar. Starfsem-
in hefur hingað til verið miðuð við ung-
templara á aldrinum 14—20 ára.
Ferðalag í járnbrautarlest.
Hjón nokkur í Ameríku voru á ferðalagi
með drenginn sinn. Þau ferðuðust i svefn-
vagni i járnbrautarlest, og var sá litli lát-
inn sofa i efra rúmi í klefanum. Þeim litla
varð ekki um sel, þegar Ijósin voru allt í
einu slökkt i klefanum, og kallaði: „Pabbi,
ertu hérna?“ „Já, ég er hérna,“ svaraði
faðirinn, „en farðu nú að sofa, góði minn.“
Eftir litla stund kallar sá Iitli aftur:
„Mamma mín, ertu hérna líka.“ „Já,“ svar-
aði móðirin, „vcrtu nú ekki að þcssum
lirópum, farðu strax að sofa.“ Ekki varð sá
litli ánægður með þessi svör, og eftir stutta
stund byrjar hann að spyrja á nýjan lcik.
Maður nokkur, sem var í sama jórnbraut-
arvagni missti nú þolinmæðina og hrópaði:
„Já, faðir þinn og móðir eru hérna og allir
þínir ættingjar lika. Farðu nú að sofa, og
liættu þessum lirópum." Það leið samt ekki
á löngu, þar til sá litli lét heyra til sín að
nýju, og nú var hann alvarlega liræddur:
„Mamma min,“ sagði hann, „var það guð
sjálfur, sem var að tala við mig?“
TH-i ~rryr~ ri -™. y Kemur út einu sinni í mánuði, og auk þess fá skuldlausir
/Ír / v » Inw /\ l^j kaupendur litprentað jólablað. — Árgangurinn kr. 35.00.
mmmmmmmi^mmmmmmmmmm Gjalddagi er 1. apríl. Afgrciðsla: Kirkjutorgi 4. Sími 14235.
Utanáskrift: Æskan, pósthólf 14. — Ritstjórar: Grímur Engilberts, simi 12042, póst-
hólf 601, og Heimir Hannesson, sími 14789. Afgreiðslumaður: Jóhann Ögm. Oddsson,
simi 13339. — Útgefandi: Stórstúka fslands. — Prentsmiðjan Oddi h.f.
180