Æskan - 01.11.1964, Blaðsíða 2
Illlllllllllllllllllllllllllll.lli IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII.IIIIJIIIIIIIIIIIIJIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii,Iinn,,1,11,1,111,1 „lllli:lll|lllll|
ESKAN
'aiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiRiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiRiiiiiiiiiiiaiiiiiiNiiiiiiBiiiiisiiiiiiiiaiiiiitiimifiiiiiiii,numn,llll,ll(ill,lliaillllllllllllllllgIIIIIIII|ll||||||a||||||||||
Ritsljórí: GRIMUR ENGILBERTS, ritstjórn: Lœkjargötu lOA, sími 17336, heimasími 12042, pósthólf 601. Framkvœmdastjóri:
65 árg KRISTJÁN GUÐMUNDSSON, skrifstofa: Lœkjargötu 10A, sími 17336, heimasími 23230. Afgreiðsla: Kirkjutorgí 4, sími 14235.
11—12 tbl Árgongurinn kr. 150,00. Gjalddagi: 1. apríl. I lausasölu kr. 20,00 eintakið. — Utanáskrift: ÆSKAN, pósthólf 14, Reykjavík.
Utgcfandi: Stórstúka Islands. — Myndamót: Prentmyndastofa Helga Guðmundssonar. — Prentun: Prentsmiðjan ODDI h.f. —
naiiBiiitiiliiiiiiiiiiiHin
Desember
1964
■ll■ll■ll■ll■ll■llllllillll■"■ll>
■ I !■I|I>■111' li ■ 11 ■ III11111111V11 ■
■ ll■ll■ll■ll■ll■ll■
llllll■ll|ll■lllll■lllll■ll■ll■ll■ll■
J ÓLASVEINAR
Sumir segja að jólasveinarnir séu níu, eins og
stendur í þulunni: „Jólasveinar einn og átta“.
Þeir tínast að einn og einn fyrir jólin og hverfa
svo einn og einn. Til þess bendir vísan:
Níu nóttum fyrir jól
þá kem ég til manna.
Upp á einum háum hól
þar stendur mín kanna.
Hér er líka gert ráð fyrir því að jólasveinarn-
ir séu 9, ef þetta á við þann fyrsta, sem kemur.
En flestir telja þó að þeir hafi verið 13 og hafi
sá fyrsti komið hálfum mánuði fyrir jól, en sá
seinasti farið á þrettándanum, en þá er talið að
jólin séu úti. Menn þekkja líka 13 nöfn á þeim
og eru þau þessi: Stekkjarstaur, Giljagaur,
Stúfur, Pottasleikir, Þvörusleikir, Askasleikir,
Faldafeykir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir, Glugga-
gægir, Gáttaþefur, Ketkrókur og Kertasníkir.
Þeir eru stórir og ljótir, luralegir, en ekki kem-
ur mönnum saman um það, hvernig þeir voru
vaxnir. Almennast er talið, að þeir séu klofnir
upp í háls og fæturnir kringlóttir. En aðrir segja
að þeir séu tómur búkur niður í gegn. Þeir eru
í röndóttum fötum með stóra gráa húfu á höfði
og hafa með sér gráan poka. Þeir lifa mest á því
sem talað er ljótt um jólaleytið, en annars
benda nöfn þeirra á það hvað þeir girnast mest
og hvernig þeir haga sér. Svo hættir þeim við að
vilja fara í jólamatinn fólksins, einkum barn-
anna. Þeir eru mjög meinlausir og gera engum
illt, nema helzt að þeir hrekki löt og óþæg börn.
Af allt öðru sauðahúsi er jólasveinninn, sem
kemur með gjafir til barnanna. Það er glaðlynd-
ur öldungur, sem gengur á milli til að gleðja
aðra. Hann er alltaf á rauðri skikkju og með
rauða skotthúfu á höfðinu, og á því má þekkja
hann frá hinum jólasveinunum.
334