Æskan - 01.11.1964, Side 10
Hann kastaði spilunum upp í loftið.
einn galdur, sem ég er ekki viss um
að hann geti leikið eftir?“
Rauðskeggur leit hæðnislega á unga
manninn, en kóngur og dóttir hans
fengu bæði nýja von. Þau þekktu
hann líka. Hann vann sem þjónn hjá
gamla hirðtöframeistaranum.
Nýkomni maðurinn, sem hét Ter-
kel dró spil úr vasa sínum og gerði
marga og vandasama spilagaldra. En
Rauðskeggur lék þá jafnóðum eftir
af sömu leikni. — Rauðskeggur varð
alltaf sigurvissari og montnari, en
vonleysið skein út úr andliti kóngsins
og hirðarinnar, sem horfði á.
Þá hló Terkel og sagði: „Ég hef
geymt bezta galdurinn minn og sjáið
nú.“ Hann kastaði spilunum upp að
lofti í salnum. „Takið nú eftir,“ sagði
hann. „Öll spilin muriu detta niður,
nema eitt, sem mun verða kyrrt uppi
til morguns.“
Rauðskeggur hugsaði sig um dálitla
stund, síðan reyndi hann að gera
þetta sama, og mælti fram nokkur
sterk töfraorð um leið. En spilin duttu
öll niður aftur. Þau breyttust að
vísu sum í rósir og fjólur, önnur
urðu að froskum og snákum, svo að
kóngsdóttirin varð hrædd og hljóp
upp á borð. Rauðskeggur gamli varð
gulur af öfund yfir því að finna þarna
ofjarl sinn í göldrum.
„Kannski fellur þetta spil þitt
aldrei niður aftur, eða þá að það fell-
ur eftir svo sem klukkutíma.“
„Nei,“ svaraði Terkel og hló. „Það
hangir þarna til morguns og ekki
lengur. Mínir galdrar eru öruggir.“
„Það munum við fá að sjá í fyrra-
málið,“ sagði kóngur, sem nú var orð-
inn vonbelri. „Við verðum hér öll
saman í nótt og sjáum hvað skeður."
Kóngur lét nú bera inn mat og
drykk og allir biðu þess að dagur
rynni. — Ekkert gerðist. Spilið sat
fast uppi í lofti salarins og þegar líða
tók á nóttina, var auðséð, að Rauð-
skeggur var orðinn órór. — Að síðustu
þoldi hann ekki mátið. Hann gerði
sig að svörtu skýi, sem sveif út um
opinn gluggann og hefur hann ekki
sézt síðan þar í landi.
Næsta morgun féll spilið niður.
„Þetta er stórkostlegur galdur,"
sagði kóngurinn við sveininn. „Nú
skaltu fá þessar þrjár tunnur gulls,
sem lieitið var.“
„Nei, þakka yðar hálign fyrir, en
ég gerði þetta aðeins til þess að frelsa
kóngsdótturina."
„Þá færðu mig í kaupbæti," sagði
kóngsdóttirin glöð, „mér hefir ætíð
þótt svo vænt um þig og nú ert þú
orðinn prins og ofan í kaupið mjög
ríkur.“
„Já,“ sagði kóngurinn, „þú skalt
verða eftirmaður minn, en mig langar
svo mikið til að vita hvernig þú gerð-
ir galdurinn."
„Já, það er mjög auðvelt að út-
skýra það, þetta var eiginlega ekki
galdur, ég setti bara ofurlítið af græn-
sápu aftan á eitt spilið og svo klesstist
]jað við lol'lið í salnum. Ég vissi einn-
ig að spilið mundi ekki detta niður
fyrr en sápan væri orðin þurr, en það
tekur um hálfan sólarhring. — Raun-
ar á gamli hirðtöframeistarinn úti í
skóginum heiðurinn af að liafa fund-
ið þetta upp.“
„Já, þú ert hygginn piltur, drengur
minn, og ég sný ekki aftur með það,
að þú verðir kóngur eftir minn dag.“
MADÍÓ
AMATGM
Framhald af síðu 375.
Komið hafa fram óskir frá lesendum
um að birta myndir og einfaldar teikn-
ingar af talstöðvum, sem liægt væri að
smíða. Til að mega smíða senditæki, þurfa
menn að hafa leyfi frá Landssíma íslands.
Hadíóamatörarnir taka próf og fá svo
leyfi til að stunda sína tómstundaiðju.
Langi ykkur til að fá reglur fyrir radíó-
amatöra, þá skrifið til Æskuunar og biðj-
ið um ]>ær. Langi ykkur til að gerast
félagar í Félagi islenzkra radíóamatöra,
]>á er heimilisfang þess: Pósthólf 1058,
Heykjavík.
Jóliann Frímannsson hiður um miðun-
arstöð. Þetta er nokkuð tæknilegt atriði,
og ég veit ekki, livort það er við hæfi
flestra lesenda Æskunnar. En þeir, sem
hafa áliuga á þessu, geta skrifað til Æsk-
unnar og fengið senda í pósti ágæta grein
um þetta efni, sem birtist í TF, frétta-
blaði isienzku radíóamatöranna.