Æskan - 01.11.1964, Qupperneq 11
ÆSKAN
Músið hans Jóhannesar skógarhöggvara stendur
innst í dalnum í unduríögru álí’alandi, og eins er
með það og verustaði álfanna, að það sést ekki iyrr
en alveg er komið að því.
Það er aðfangadagur jóla, og enginn er heima
nema hún Sóllind litla, dóttir skógarhöggvarans,
hún situr við gluggann. Pabbi hennar og mamma
fóru eldsnemma á fætur í morgun, pabbi til að
höggva við, sem hann flytur á sleða niður í þorp-
ið, en mamma til að hjálpa við hússtörf, því allir
hafa svo rnikið að starfa fyrir jólin. Hún Sóllind
litla er 9 ára og eina barn skógarhöggvarahjónanna
og ljómandi falleg, með fjósgult liár fléttað í tvær
fléttur, augun eru stór og blá, hún horfir brosandi
út, allt er svo fagurt.
Jólin eru að koma og hún Sóllind litla hlakkar
svo mikið til, hátíð allra hátíða er að nálgast, því
þá fæddist blessað Jesúbarnið. Úti korna litlu fugf-
arnir að í smáhópum, vetrargestirnir, sem hún
þekkir svo vel, og gleymir afdrei að strá brauðmof-
Húsið hans Jóhannesar skógarhöggvara.
%
„Þú ert kominn til að heyra jólaboðskapinn."
um til út á fönnina, loks er komin stór breiða, þeir
eru eins og trítlandi ljósálfar, svo litlir og léttir, en
einn þeirra sker sig út úr hópnum og kemur alltaf
nær gfugganum tif hennar. Litla stúlkan fylgist með
honum fulf eftirvæntingar. „Hvað er það, elsku
litli íuglinn rninn, hvað viftu mér?“ segir hún. Hann
trítlar nær og nær, foks er liann kominn alveg að
glugganum og horfir á hana. Loksins skilur hún
livað hann vill. „Þú ert kominn til að heyra jóla-
boðskapinn.“ Litli fuglinn kinkar kolli til sam-
þykkis, og Sóllind hefur frásöguna um fæðingu
frelsarans.
Fyrir nærri tvö Jtúsund árum l’æddist Jesú, Guðs
elskandi sonur, í fjárhúsi, því það var ekkert rúm
fyrir foreldrana í gistihúsum borgarinnar Betfehem,
en þau voru þar stödd til að fáta skrásetja sig, og
móðirin bjó um biessað litla barnið í jötu, sem
skepnunum var ætluð, en í kringum það skein
liimnesk birta. Fjárhirðar voru að gæta hjarða
sinna á völlunum fyrir utan borgina. Allt í einu
stóð engill Drottins hjá þeim, og dýrð drottins
ljómaði í kringum þá, og engillinn sagði: „Yður
er í dag frelsari fæddur," og fjöldi himneskra her-
sveita lofuðu Guð og sögðu: „Dýrð sé Guði í upp-
hæðum og friður á jörðu með þeim mönnum, sem
hann hefur velþóknun á,“ og fjárhirðarnir fóru og
fundu Maríu og Jósef, föreldra Jesú, og litla barnið
liggjandi í jötunni.
Vitringar nokkrir komu frá Austurlöndum. Þeir
L.
343