Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1964, Side 12

Æskan - 01.11.1964, Side 12
ÆSKAN Hann hóf frásöguna um Jesúbarnið. höfðu séð nýja stjörnu, skæra og bjarta, renna upp og vildu veita hinum nýfædda Gyðingakonungi lotningu. En þegar konungurinn Heródes heyrði þetta varð hann hræddur og sendi eftir fræðimönnunum, hann spurði þá: „Hvar á Messías að fæðast?“ i>eir svöruðu: „í Betlehem,“ og Heródes konungur lét þá fara til að finna barnið og bað þá að gera sér aðvart, þegar þeir hefðu íundið það, svo að einnig hann gæti veitt því lotningu, og stjarnan stóra og bjarta vís- aði þeim leið og staðnæmdist þar ylir, sem barnið var. Þeir gengu inn í húsið og fundu barnið ásamt Maríu móður þess og iéllu fram og vottuðu því lotningu, þeir opnuðu fjárhirzlur sínar og færðu því gjafir: Gull, reykelsi og myrru. Heródes konungur hafði ætlað sér að láta deyöa barnið, en Guð gaf vitringunum bendingu í draumi um það að fara ekki aftur á fund hans. „Þetta er jólaboðskapurinn, litli fuglinn minn, og þannig er það, að allir vilja gleðja hvern annan á jólunum, fæðingardegi frelsarans, eins og vitring- arnir, en fegursta gjöfin, sem gefin hefur verið, er Jesúbarnið, því Drottinn Guð gal sinn elskaða son, Jesú Krist, til frelsis öllum mönnum. Og bless- að litla barnið þroskaðist að vizku og vexti hjá Guði og mönnum, og síðar kenndi hann og gerði kraftaverk, læknaði sjúka og synduga menn, og allir vegir hans voru Guði til dýrðar. En mennirnir handtóku hann loks og dæmdu til krossfestingar, en sigur hans var mestur á krossi og í dauða með upprisu hans og himnaför, og sífellt vakir hann yfir okkur öllum og vísar okkur leið til Guðs föður, skapara allra hluta." Þegar hún hafði lokið frásögunni stóðu tvö tár í augum litla fuglsins, sem féllu nú niður á mjöll- ina. Allir fuglarnir voru þá flognir og var hann einn eftir og trítlaði frá glugganum, þá leit hann til baka til hennar og hóf sig til iiugs. „Gleðileg jól! vinurinn minn, við eigum eftir að sjást aftur, því að við eigum sama Föðurinn á himn- um, og við þekkjum hann bæði,“ segir hún og veifar til hans, og henni sýnist ekki betur en hann blaki til sín vængjunum og tísti Gleðileg jól! Loks hvarf hann inn í greniviðinn^ í fjallshlíðinni og fann þar bræður sína í skjólinu, liann settist mitt á milli þeirra, og þeir röðuðu sér kring um liann, og hann hóf frásöguna um Jesúbarnið, íegursta ævintýrið á jörðinni. Þeir hölluðu höfðum sínum og hlustuðu hug- fangnir. En Sóllind litla stóð við gluggann og horfði á blettinn, ]jar sem litli fuglinn hafði staðið, en hvað var þetta? Tvær logandi og skínandi perlur skinu x mjöllinni, tár litla fuglsins höfðu orðið að dýrindis perlum. Hún fór út í snjóinn og tók perlurnar varlega upp á milli fingranna og klemmdi þær síðan í lóf- anum, hrædd um að týna þeim. Síðan settist hún 344

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.