Æskan - 01.11.1964, Side 29
Hann barðist
uið Ijón.
Það eru til margar goðsagnir um viður-
eignir manna og dýra. í „Þrautum Hera-
klesar“ er t. d. sagt frá því, að ein þrautin
var að Herakles átti að glíma við Ijón,
sem hann og gerði, og sögnin segir, að
hann hafi unnið það í hryggspennu, og
svo má víst lengi telja. En að menn hafi
raunverulega glímt við Ijón, það hef ég
ekki vitað fyrr en ég rakst á þessa frá-
sögn, sem ég las nýlega í ensku tímariti,
„VERÖLD MANNSINS“, októberhefti 1964.
Hér birtist svo frásögnin ykkur til fróð-
leiks og skemmtunar. Greinin er lausiega
þýdd.
Hinn heimsfrægi glímu- og lyftingamaður Eugen
Sandow réðst í vinnu hjá sirkus-eigandanum Fló-
renz Ziegfieid sem aflrauna- og sýningamaður.
Þetta var árið 1891 og þá var Sandow 26 ára gamall.
Sandow fór með Ziegfield frá Englandi til Ameríku.
Hann ferðaðist fylki úr fylki og sýndi alltaf fyrir
fullu lrúsi af áhugasömu fólki. Það var um það bil
í lok þessa ferðalags, að Sandow glímdi við ijón.
Sandow var ekki hræddur við að glíma við ljónið,
því að hann var búinn að fá mikla reynslu að glíma
við harðskeytta glímumenn af livítum og svört-
um kynstofni og fór þar alltaf ósigraður af liólmi.
Þegar sirkusinn var í Kaliforníu, undirbjó eigand-
inn einvígi milli ljóns og bjarnar. Þessi óvenjulegi
atburður vakti mikinn áliuga og aðgöngumiðarnir
seldust upp á svipstundu, en lögreglan skarst í leik-
inn og bannaði sýninguna. Það var því ekkert ann-
að að gera, en að borga aðgöngumiðana til baka.
Þá var það, að Sandow gaf sig fram og sagðist skyldi
berjast við Ijónið, en með vissum skilyrðum þó:
Annað hvort mætti lrann hafa hníf að vopni, eða
að ljónið yrði múlbundið og klærnar vafðar. Auð-
vitað var Ziegfiefd, eigandi sirkusins, á móti því, að
aðalhetja hans, Sandow, legði út í þessa áhættu, en
Sandow var svo öruggur um, að hann gæti ráðið
við ljónið, að Flórenz gaf að lokum samþykki sitt.
Sandow fór fram á, að fá að æfa sig á ljóninu, áður
en hin raunverulega sýning færi fram. Hann var
óvopnaður, en Ijónið var múlbundið og klærnar
vafðar. Ljónið var gríðarstórt og grimmt dýr og
hafði nýlega misþyrmt einum varðanna, er gætti
Hinn heimsfrægi
glímu- og lyftinga-
maður Eugen
Sandow, sem barð-
ist við ljón.
þess, en þetta hafði engin áhrif á Sandow, hann var
óhræddur og ákveðinn. Þessi atburður, að Sandow
ætlaði að berjast við ljónið, vakti mikla athygli og
allir aðgöngumiðarnir seldust upp á svipstundu.
Ægilegt stökk
Nú rann upp sú stund, þegar æfingin skyldi hefj-
ast. Óhræddur og ákveðinn stökk Sandow inn í
búrið. Ljónið horfði á hann, urraði og hnipraði
361