Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1964, Side 31

Æskan - 01.11.1964, Side 31
Ljónið stökk upp á herðarnar á mér, en ég greip um höfuð þess og náði góðu taki og kastaði því yfir höf- ið mér svo það skall í gólfið fyrir framan mig. Eig- andi ljónsins kom þá inn í búrið og krafðist þess, að ég hætti, því að Ijónið lá máttvana á gólfinu. Ég var blóðugur og þreyttur, en ánægður, því að ég hafði ráðið við ljónið. Svo rann upp hin stóra stund. Tuttugu þúsund manns komu þetta kviild, til þess að sjá bardaga milli ljóns og manns. En það var varla hægt að kalla þetta bardaga. Eftir mikinn undirbúning var komið með ljónabúrið. Mikil eftirvænting var hjá mannfjöldanum, jiegar Sandow opnaði dyrnar á ljónabúrinu og réðist til inngöngu, tilbúinn að berjast við ljónið, en þegar ljónið sá Sandow vildi það ekki berjast. Það var búið að fá nóg af fyrri bar- daganum, það fór í burtu og hnipraði sig úti í horni. Þrátt fyrir tilraunir Sandows til að egna það, bar J^að engan árangur. Hann greip þá í halann á ljón- inu og togaði í af öllum kröftum. Þá var eins og Ijónið lifnaði við. Það gerði veika tilraun til að stökkva á Sandow, en Jjað var létt fyrir Sandow að forða sér undan. Eldsnöggt greip Sandow um dýrið og kastaði Jrví í gólfið og Ijónið var ánægt að liggja Jrar. Sandow greip ])á um miðju Jtess og kastaði Jdví upp á axlir sér og gekk þannig unr gólf ljónabúrsins með ljónið á öxlunum. Það varð Jwí ekkert úr bardaga í Jætta sinn og ástæðan var sú, að ljónið var hrætt við Sandow, það hafði fengið né)g í fyrra skiptið. Það viðurkenndi Sandow sem sigurvegara. Eugen Sandow var um Jretta leyti viðurkenndur „sterkasti maður í lieimi“. Fáir hafa gert meira fyrir líkamsræktina í heimin- um en hann. Hann ferðaðist um allan heiminn og gekk alltaf með sigur af hólmi, sem glímu- og afl- raunamaður. Á Jressu ferðalagi um Ameríku í þjón- ustu Flórenz Ziegfields græddi Sandow eina milljón dala. Síðan fór hann aftur til Englands og setti á stofn líkamsræktarskóla (Health Studio). Sandow dó í bifreiðaslysi árið 1925 aðeins 58 ára gamall. Hann var fæddur árið 1867. Þegar hann dó hafði liann áunnið sér ódauðlega l'rægð á sviði líkams- ræktar og þjálfunar. Nafn hans og orðstír mun lifa svo lengi, sem menn hafa áhuga á að Jyjálfa líkama sinn. Það er álit sérfróðra manna, að Sandow hafi náð fullkomnun í að þjálfa líkama sinn og hann vildi líka hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama. Bjarni Sveinsson. Híað Mta |ai? Hér sjáið þið einn jólasvein, sem hefur tek- ið tækni nútímans í Jijónustu sína. Hann ferð- ast nú á skíðaflugvél, því til margra bæja og borga verður hann að ná fyrir jólin. Hér er hann að nálgast einn bæinn, og ætlar sér að færa fjórum góðum börnum gjafir. Börnin eru tvær stúlkur og tveir drengir. Stöfunum í nöfnum þeirra hefur verið ruglað, en nú ættuð þið að hjálpa jólasveininum að raða nöfnun- um upp að nýju og sjá hvað j)essi fjögur börn heita. — Fern verðlaun verð'a veitt fyrir rétt svör. Verðlaunin eru nýjar bækur frá Bókaút- gáfu Æskunnar. Svör verða að hafa borizt fyr- ir 20. janúar næstkomandi. 363

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.