Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1964, Side 34

Æskan - 01.11.1964, Side 34
1 S T I N A ÖIl þau börn, sem heyra sögu litla lambsins, munu kynnast lífi dýra og náttúru betur en áður. Bókin kostar aðeins kr. 61,70. Litla lambið. Þetta er íslenzk sveitasaga, eftir séra Jón Kr. ísfeld, með fögrum teikning- um eftir Þórdísi Tryggvadóttur lista- konu. Saga þessi mun verða kærkorn- in handa þeim yngstu, og ætti fremur öðru heima í jólapökkum þeirra í ;lr. Öll þau börn, sem heyra sögu litla lambsins, munu kynnast lífi dýra og náttúru betur en áður. Annar þáttur bókarinnar hefst svona: Skeifhyrna var úti á túni og stóð nú og sleikti nýfœdda lambið sitt. Hún varð að ]>vo með tungunni sinni, því að liún átti hvorki svamp né handklæði til þess að þvo ])ví með. En litla lamhið kunni ekki almennilega við þetta og reyndi að hrölta á fætur. En það gekk illa. I’að jarm- aði ])á ósköp vesældarlega og sagði við mömmu sína, að það væri svangt. Mamma ]>ess svaraði engu, en hélt bara áfram að sleikja ]>að. En litla lambið reyndi að hrölta á fætur, þegar mamma þess hætti loks að sleikja það. Eftir margar mis- heppnaðar tilraunir tókst því að risa á fætur. Svo reyndi það að ganga, en riðaði ákaflega og ætlaði livað eftir annað að detta um koll. En það gafst ekki upp og áður en löng stund var liðin, komst það að júgrinu á mömmu sinni og náði á ann- an spenann. En livað þvi fannst mjólkin góð. Það drakk og drakk, þangað til ]>að var orðið ]>reytt í kjálkunum af því að toga spenann og kreista l)ann. l>að varð hara að hætta vegna þreytunnar. I>á fór mamma litla iambsins að þvo ]>vi aftur. Þegar hún liafði þvegið því eins mikið og l)enni fannst nauðsynlegt, labbaði hún svolitið frá því og fór að kroppa. Eitla lambið sagði ekki neitt, en hristi öðru hverju litla höfuðið. Svo fór það að reyna að átta sig á þvi, hvar það væri nú eiginlega. Bezta telpusaga ársins er sagan um hana Stínu og vinstúlkur liennar. Stína litla er falleg og elskuleg stúlka og skemmtilega brún eftir sólskinið í sumarleyfinu með pabba og mömmu. Hún hlakkar til að byrja í skólanum og fara með bækur, blýanta og liti í skólatöskunni sinni nýju. Stína er á sjúkrahúsinu, en þar er Villa líka, svo að það er hægt að sætta sig við það. Hitt er verra, þegar skólinn byrjar, að vera öðruvísi en aðrir, verða fyrir aðkasti eða vera settur hjá. Það er heldur ekkert ánægjidegt að láta aðra kenna í brjósti um sig. En það er furða, hvað við getum, ef við bara er- um við sjálf. Bókin hlaut I. verðlaun í mikilli barnabókasamkeppni í Noregi haustið 1962. Sigurður Gunnarsson skólastjóri þýddi bókina. ☆ litra llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllliu^

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.