Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1964, Side 42

Æskan - 01.11.1964, Side 42
ÆSKAN orðið þér að meini, elsku litla lambið mitt,“ sagði mamman og varpaði öndinni léttilega og horfði ástúðlega á litla lambið. „Þetta var andstyggilegt dýr, mamma. Hvað heitir það eiginlega?“ spurði litla lambið og horfði í þá átt, sem refurinn hafði hlaupið í. „Þetta var nú hvorki meira né minna en einn allra hættulegasti óvinur litlu lamb- anna. Hann er kallaður refur. Hann vill taka lítil lömb og borða þau. Þú verður al- varlega að gæta þín fyrir honum,“ sagði mamman. „Mér leizt reglulega illa á hann. Eg lá hérna í mestu makindum og var að hugsa. Þá heyrði ég allt í einu skrjáfa í hríslunum þarna og leit upp. Þá sá ég þetta ljóta refa- dýr vera að læðast lymskulega í áttina til mín. Augun í honum voru svo ljót og illi- leg, að ég sagði honum að fara burtu,“ sagði litla lambið og var auðsjáanlega talsvert hreykið af frammistöðu sinni. „Það var alveg rétt hjá þér. Ég er búin að vara þig við ýmsum hættum og öðru, sem þér er hættulegt, og þú verður að gæta þín fyrir. En ég vil leggja sérstaklega ríkt á við þig að gæta þín fyrir refnum.“ „Já, það skal ég gera, mamma mín. Eg veit að þú vilt mér alltaf það bezta. Og svo hefir þú reynsluna.“ „O, já, þú segir það satt, ég hefi reynsl- / una. Eg veit bæði gott og illt, sem við kind- urnar verðum fyrir. - Hér er dásamlegt að vera. Við skulum reyna að njóta þess, með- an okkur gefst tækifæri til þess.“ ★ Mamman fór að kroppa grængresið. Litla lambið lagðist niður og virti fyrir sér umhverfið. Veðrið var yndislegt. Sc>lin skein í heiði. Fuglarnir sungu, glaðir og kátir, fagnaðar- söngva sína til lífsins og ljóssins. Dásamleg, fjölbreytileg blóm breiddu krónur sínar móti sólinni, eins og útbreiddan, fagnandi faðm. — Það var friðsælt og draumfagurt frammi í dalnum. ★ Þarna frammi í dalnum skiljum við nú við litla lambið og mömmu þess. Við ósk- um þess, að þeim megi líða þar vel. Og svo þökkum við þeim fyrir allar skemmtilegu stundirnar, sem við höfum átt með þeim. ENDIR KHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKI KHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKI 374

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.