Æskan - 01.11.1964, Qupperneq 61
Fyi'ir 28 árum stóð lítill snáði
með cellóið sitt á sviði Odd-
fellowhallarinnar í Kaup-
mannahöfn og spilaði verk eftir Bach
mörg hundruð áheyrendum til gleði
og mikillar undrunar — því snáðinn
var aðeins 4 ára. — Þetta skeði á hin-
um árlegu jólahljómleikum, sem dag-
blaðið Politiken stóð lyrir. — Undra-
barnið var Erling Blöndal Bengtson,
sem er að hálfu íslendingur (móðir)
og hefur oft komið hér til lands og
lialdið hljómleika. — Fyrst, þegar
hann var yngri, aðstoðaði móðir
hans hann, því hún er píanóleikari
en faðir hans fiðluleikari. — Blöndal
er löngu frægur í hljómlistarheimin-
um sem einn af fremstu celloleikur-
um heims og hefur ferðast um allan
heim með cellóið sitt og haldið hljóm-
leika.
Þegar hann var aðeins 17 ára var
hann orðinn kennari við músíkskóla
í Ameríku. í dag er hann prófessor
við Musikkonservatorið í Kaup-
mannahöfn, en er frjáls að ferðast
hvert sem hann vill.
Bengtson er kvæntur og á 2 ára
snáða, sem heitir Henrik og virðist
hann ætla að feta í fótspor föður síns.
■ H
Erling Blöndal Bengtson.
Undrabarn. ---- Nú stór.
Þjóðtrú um jólin
Skrítinn engill.
Lilltt spyr mömmu sína að
|)ví, livaðan litlu börnin komi,
og mamma segir henni að þau
séu englar, sem guð sendi nið-
ur á jörðina.
— Var ég einu sinni engill?
spyr Lilla.
— Já, segir mamma.
Þá gýtur Lilla hornauga til
afa sins, sem er mjög upp-
stökkur og stórorður, og spyr:
— Var afi Ifka engill einu
sinni?
— Já, segir mamma og ]>ó
með semingi.
— Þá skellir Lilla upp og
hlær og segir:
— Það liefur verið skrítinn
engill!
Ef ljós deyr á jólanótt, ])á
er einhver feigur i liúsinu.
Sé sólskin fagurt á jóladng,
verður gott ár, sé sólskin ann-
an dag jóla, verður liart ár.
Þegar jóladagur kemur með
vaxandi tungli, veit á gott ár,
og sé haim góður, veit á hetm.
Þegar hreinviðri er og regn-
laust aðfangadag jóla og jóla-
nótt, ætla menn það hoði
frostasamt ár, en viðri öðru
visi, veit á betra.
393