Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1964, Page 62

Æskan - 01.11.1964, Page 62
ÆSKAN Nýjar bækur frá LEIFTRI Hvikul er konuást eftir Guörúnu frá Lundi. — Þessi saga Guörúnar hefur hvergi hirzt áður. Sagan gerist á fyrri hluta þessarar aldar og hefst á því, er útflytjendur til Ameríku eru aö yfirgefa landiö. — Heillar mig Spánn eftir Prederik Wislöff. Spánn er heillandi land. Saga Spánar er stórbrotin. Spænska þjóðin er glæsileg og tignarleg i fasi. List hennar sérstæð, og margt sem vekur athygli ferðamanns- ins. Fullnuminn Vestanhafs eftir Cyril Scott. Þýðandi Steinunn Briem. Fullnuminn Vest- anhafs er framhald hinnar frægu bókar tónskáldsins og rit- höfundarins Cyrii Scott — FULLNUMINN — þar sem hann segir frá kynnum sínum af dularfullum spekingi. Lending með lífið að veði skáldsaga eftir J. Castle og Arthur Haily. Þýðandi Hersteinn Pálsson. Viðburður sá, sem hér er lýst, gerist að nóttu. Stór flugvél er þá á leið yfir hinn ókleifa fjallgarð milli Winnipeg og Vancouver. í vélinni eru 35 farþegar, en báðir flugmenn- irnir eru meðvitundarlausir. — Bóndinn í Þverárdal skáldsaga eftir Unu Þ. Árnadóttur. Una er skagfirzk og er þetta fyrsta bók hennar. — Þetta er bók, sem vekja mun athygli. í vökulok ljóðabók eftir Margréti Jónsdóttur. Margrét er landskunn, bæði af sögum sínum og ljóðum. Systurnar skáldsaga úr Reykjavíkurlífinu eftir Ingibjörgu Jónsdóttur. — Sagan um systurnar er ástarsaga, saga um örlög tveggja systra. Smáfólk tíu sögur eftir Guðrúnu Jacobsen. — Þetta er 5. bók Guðrúnar og tvær síðustu bækurnar hefur hún sjálf myndskreytt. f sög- um Guðrúnar Jacobsen skiptist á létt gamansemi og þung alvara. Sumar sögurnar í þessari bók eru snilldarvel skrifaðar. Maddaman með kýrhausinn eftir Helga Hálfdánarson, er bók, sem mikla athygli mun vekja. Helgi er hlédrægur, en hörkugreindur og glöggur fræði- maður. Honum þykir illa hafa verið farið með Völuspá, merk- asta kvæði á Noröurlöndum að fornu og nýju. Stjörnuspáin eftir R. H. Nylor. — Viltu þekkja s'jálfan þig og vita hvað framtíðin ber í skauti sínu? Hefurðu gaman af að kynnast lyndiseinkennum kunningja þinna og vina? — Lífið í kringum okkur eftir Ingimar Óskarsson — Ingimar er landskunnur, bæði af útvarpserindum sínum og greinum í blöðum og tímaritum. í þessari bók lýsir hann á sinn skemmtilega hátt f jölda mörgum sérkenniiegum dýrum, bæði á sjó og landi. Todda frá Blágarði eftir Margréti Jónsdóttur. — Margrét Jónsdóttir er fyrir löngu þjcðkunn, bæði af sögum og ljóðabókum. — Þetta er sagan um TODDU litlu eða Þórdísi Sveinsdóttur. Börnin í Löngugötu eftir Kristján Jóhannsson. — Sagan gerist í Reykjavik. Höf- undurinn er ungur kennari, og hann þekkir börnin í umhverf- inu. Börnin í Löngugötu eru býsna mörg, og ekki er hægt að lýsa þeim öllum. Rósalín eftir Johanne Spyri. Þýðandi Freysteinn Gunnarsson. — Rósa- lín er átta ára. Hún heitir annars Þeresía, en er alltaf kölluð Rósalín. Nafnið fékk hún af því að hún var svo elsk að blóm- um. Þetta er falleg saga. Þrjár í sumarleyfi — Trilla, Trína og ég. Skólanum er lokið og þrjár telpur í sólskinsskapi halda í sum- arleyfi. Þær eru 11 ára og hlakka til að hitta ættingja og vini, sem eiga heima í sveitinni. Þar kynnast þær kettinum Gosa og ienda í ótal ævintýrum. Pétur og Tóbí. Bókin er í senn litabók og lestrarbók. Öll börn hafa gaman af ævintýrum, og öllum þykir þeim gaman að lita. — Þetta er bókin, sem barnið vantar. Nancy og leyndardómur gamla hússins. Nancy er dóttir lögfræðings og hefur gaman af leynilögreglu- sögum. Allt sem er leyndardómsfullt er henni hugleikið — og í þessari bók kemst hún í eitt slíkt ævintýri. Hanna tekur ákvörðun. Hanna er komin á þann aldur, að ástin er farin að ólga í blóði hennar og alvara lífsins að taka í taumana. Matta-Maja verður fiveg. Matta-Maja er líka að komast á leiðarenda. Hún er orðin kunn dansmær, en braut frægðarinnar er stundum erfiðleik- um háð. Jói og flugbjörgunarsveitin eftir Örn Klóa. Örn Klói er dulnefni, en höfundurinn er ís- lenzkur piltur, Kristján Jónsson leikari, og er þetta 8. bók hans. Sagan af Tuma litla eftir Mark Twain. — Ekki þarf að kynna höfundinn. Hann er heimsfrægur. Sagan af Tuma litla hefur áður komið á íslenzku, en verið ófáanleg mörg undanfarin ár. KIM-bækurnar — KIM og gimsteinahvarfið (10. Kim-bókin) og KIM og brennu- vargarnir (11. Kim-bókin). — Bækurnar um Kim og félaga hans eru orönar svo kunnar, að ekki þarf annaö en minna á, þegar ný Kim-bók kemur. Bob Moran-bækurnar — Kjarnorkuleyndarmálið og Smyglaraskipið, í þýðingu Magn- úsar Jochumssonar fyrrv. póstmeistara. Bob Moran-bækurnar eru sérstæðar í fiokki unglingabóka. Þær eru hetjusögur um ofurmenni. Zorro-bækurnar — ZORRO og dularfulia sverðið og ZORRO bcrst á báðar hendur. — Ekki þarf að lýsa Zorro. Unglingar um allt land þekkja hann og fylgjast af áhuga með ævintýrum hans. Og spenning- urinn eykst með hverri bók. Blóðrefur eftir Karl May, sem er þýzkur rithöfundur og talinn með þeim snjöllustu, sem skrifað hafa Indíánasögur. Blóðrefur er 4. bók- in í flokki Indíánasagna Karls May. 394

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.