Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1964, Side 65

Æskan - 01.11.1964, Side 65
ÆSKAN JÓLAMYND 2&T ónlist. Maður nokkur að nafni Napo- lcon Bird frá Cheshire í Eng- landi spilaði i 48 klukkustundir samfleytt á pianó árið 1894 án l>ess að endurtaka eitt einasta lag. Þessir tónleikar voru fyrir almenning og píanólcikarinn spilaði allt saman eftir minni. Hvaða einsöngvari sem bað Bird að leika undir fyrir sig, þurfti ekki annað en að segja honum nafnið á laginu og tón- tegundina. í Disneylandinu hans Walt Disneys er Þyrnirósarhöll ein mikil. Hér birtum við mynd af henni. Ykkar hlutverk er nú það að lita höllina, og þá sjáið þið hvað' falleg hún er í raun og veru. Takið litblýantana eða litakassana fram. 1: Blátl. 2: Ljósblátt. 3: Gulbrúnt. 4: Grátt. 5: Ljósrautt. 6: Rautt. 7: Dökk- blátt. Vinnið verkið með ró, þá kemur falleg mynd af höllinni, og kannski verður hægt að hafa hana uppi á vegg. Nicolo Paganini, einhver mesti fiðlusnillingur, sem nokkru sinni hefur verið uppi, var talsverður leikari. Hann lét gera sérstaklega mjóa strengi, sem hann sleit af áscttu ráði, þegar hann spilaði sem tryllt- ast, og ævinlega lauk með því, að hann spilaði á D-strenginn einan. Þá komu upp kviksögur um, að leikni Paganinis væri yfirnáttúrleg og hann væri i rauninni sonur myrkrahöfð- ingjans sjálfs. Paganini neydd- ist nú til að hrekja þessar bjánalegu staðhæfingar með þvi að sýna fæðingarvottorð sitt. 4 4 4 Það var líka sagt um Mozart að hann væri á yegum myrkra- höfðingjans þegar hann, átta ára að aldri, kom ítölskum áheyrendum heldur á óvart ineð snilli sinni i píanóleik. Fólkið hélt, að það væri demantsliring- ur á hönd litla drengsins, sem veitti honum þessa yfirnáttúr- legu leikni og heimtaði að hann tæki af sér liringinn, þegar liann spilaði. 397

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.