Æskan - 01.11.1964, Qupperneq 67
.ÆSKAN
Barnaleikritið Mjallhvít hefur nú verið sýnt 40 sinn-
um í Þjóðleikhúsinu. Uppselt hefur verið á flestar
sýningarnar og þetta gamla ævintýri um Mjallhvíti
og dvergana sjö hefur orðið mjög vinsælt á sviði Þjóð-
leikhússins. Leikurinn var, sem kunnugt er, frum-
sýndur s.l. vetur, en sýningar liófust aftur í Þjóðleikhúsinu á Mjallhvíti þann 8. nóv. s.l. og verður
sýningum haldið áfram á leiknum fram eftir vetri. — Myndin er af Mjallhvíti og dvergunum.
Bryndís Schram leikur Mjallhvíti, en dvergarnir eru leiknir af Árna Tryggvasyni, Gísla Alfreðs-
syni, Lárusi Ingólfssyni, Valdemar Helgasyni, Flosa Ólafssyni, Guðjóni Sigurðssyni og Sverri Guð-
mundssyni. Leikstjóri er Klemenz Jónsson.
Teikna sporöskju.
Með útbúnaöinum, sem liér er sýndur,
er auðvelt að teikna sporöskju. Teiknaðu
beina línu á pappírsblað, hún á að hafa
sömu lengd og sporaskjan, sem a að diaga
upp. Mældu nú frá hvorum enda smábút,
og settu þar nál eða smánagla 1 2, sem
silja eiga siðan fastir. Bittu svo fastan þráð
við naglana, eins og sýnt er á myndinni.
Þráðurinn á að vera svolitið lengri en sem
nemur bilinu milli naglanna — og teikn-
aðu sporöskjuna með þvi að láta vel yddan
blýant fylgja þræðinum allan hringinn.
Með þvi að slytta eða lengja þráðinn, eða
með þvi að færa naglana inn eða út, er
hægt að breyta lögun sporöskjunnar.
★
399