Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1975, Side 48

Æskan - 01.02.1975, Side 48
Hinum ýmsu tryggingum má skipta í flokka, eftir tilkomu þeirra og eðli. I fyrsta lagi má segja, að þær deilist í tvo meginarma; annars vegar lögboðnar skyldutryggingar — hins vegar frjálsar einkatryggingar. — O — Athugum fyrst lítillega þær fyrrnefndu. Þar ákveður löggjafinn eða ríkisvaldið, að þegnarnir séu skyldugir til að taka þátt í hinni sameiginlegu tryggingavernd, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Þetta er f senn gert hverjum einum og öðrum samfélags- borgurum til öryggis á ýmsan veg, og ýmist gagnvart fyrirsjáan- legum eða ófyrirsjáanlegum þörfum. Þykir landsfeðrunum þetta þá svo nauðsynlegt frá þjóðfélagssjónarmiði, að þeir þora ekkí að eiga það undir geðþótta einstaklinganna, hvort þeir fullnægja þessari tryggingaþörf af frjálsum vilja eða ekki. Þess vegna er þátttakan lögboðin. Auðvitað má segja það sama í sambandi við skyldutryggingar og önnur lagafyrirmæli, að þær séu á vissan hátt vantraust á „háttvirta kjósendur". En þar sem mikið er í húfi frá sjónarmiði almenningsheilla, er óvarlegt að treysta um of á óútreiknanleg viðhorf hinna ólikustu einstaklinga, þar sem hætta er á, að margir bregðist. Undir slíkum kringumstæðum kemur óneitanlega til kasta heilbrigðrar forsjár valdhafanna. Þess vegna er — eins og í þessu tilfelli — slagurinn látinn standa, þrátt fyrir annmarka, sem á kunna að vera, því sjaldan er unnt að sigla fram hjá öllum skerjum. Gleggsta og víðtækasta dæmið hjá okkur um lögboðnar trygg- ngar sjáum við i almannatryggingunum svokölluðu. Þar eru allir skattþegnar skyldaðir til þátttöku, hvort sem þeim er það Ijúft eða leitt. Hliðstætt má segja um ábyrgðartryggingu bifreiða. Þar sleppur enginn bifreiðareigandi. Sama er að segja um bruna- tryggingu húsa eða fasteigna. Ekki í neinu þessara dæma má viðkomandi forsjármaður ráða því sjálfur, hvort hann tryggir eða ekki. Flestir láta sér þessa „nauðung" vel lika, af því þeir sjá hvert öryggi er í henni fóigið, ef illa tekst til. Þess vegna sætta menn sig við að greiða þann kostnað, sem þessum tryggingum ersamfara. Iðgjaldið súrnar að vísu skammsýnum mönnum nokkuð í augum, en fullyrða má samt, að flestir sætti sig sómasamlega við kvöðina, þegar allt kemur til alls. — O — Snúum okkur þá svolítið að frjálsu tryggingunum. Þar ræður fólk því sjálft, hvort það tryggir yfirleitt nokkuð, eða þá að hve miklu leyti, ef það tryggir á annað borð. Slikar tryggingar eru nú boðnar í fjölmörgum greinum. Með tilliti til skyldutrygginga má segja, að þjóðfélagið sýni hér þegnum sínum ekki svo lítinn trúnað, því eins og dæmin sanna, er það nánast langur vegur frá að vera einkamál manna, hvort þeir sinna þeirri skipulögðu samábyrgð og samhjálp, sem frjálsu tryggingarnar bjóða upp á. Vanræksla í þessu efni bitnar jafnan með einhverjum hætti á fleirum en tjónþolanum einum — ósjaldan á einmitt þeim, er síst skyldi: vinum og vandamönn- um, nágrönnum og jafnvel sjálfu samfélaginu, ef um þverbak keyrir. — O — í sambandi við frjálsu tryggingarnar spyr margur, hvort þeirra sé yfirleitt nokkur þörf, úr því skyldutryggingarnar á svo rnörgum sviðum eru fyrir hendi. Er ekki alveg nægilegt að hlíta ákvæðum þeirra og láta þar við sitja? Þess konar hugleiðingum verður best svarað með því, sem sérstök athugun á þessu hefur leitt í Ijós. |Hún er sú, þótt þverstæðukennd megi virðast, að því lengra, sem hin svokölluðu velferðarþjóðfélög nútímans hafa gengiS á braut hvers konar skyldutrygginga, því iengra hafa sjálfir þjóSfélags- þegnarnir fetaS einkaleiS sína á vegum frjálsra trygginga. Hvernig má nú þetta undraverða fyrirværi styðjast „skynsam- legu viti“? Jú, myndi ekki meginástæðan vera sú, að með því að kynnast og sjá með eigin augum gagnsemi og áberandi vernd skyldutrygginganna, sem menn hafa e. t. v. verið harla mótfallnir upphaflega, hafi þeir, nauðugir viljugir, lært að meta gildi trygg- inga almennt, og þá jafnframt uppgötvað, að með eigin, frjálsu tryggingavali með tilliti tii eigin hagsmuna og aðstöðu, gætu þeir stórum tryggt lífsaðstöðu sína og sinna? Þeim er þannig „komið á bragðið". Sannleikurinn er nefnilega sá, að með hliðsjón af því, hversu víðtækar skyldutryggingarnar eru, og þurfa að ná til allra, er jafnan af hendi löggjafans miðað við lágmarksþörf þeirra, sem minnst þurfa. Órækasta vitnið um þetta eru hinar almennu og tíðu umkvartanir viðkomandi fólks um of lágar bætur, t. d. al- mannatrygginganna. Ráðið til leiðréttingar og uppfyllingar á þessu er einmitt per- sónuleg tryggingataka eftir frjálsu vali. Hún getur megnað að fylla upp í mörg þau skörð, sem hverjum einum fyrir sitt leyti og sinna finnst vera í hið almenna skyldutryggingakerfi. Þess vegna ætti fólk ekki að vanmeta þá möguleika, sem frjálsu tryggingarnar vissulega bjóða upp á, að geðþótta hvers eiris, heldur fullkomna sem mest með því að skáka kostum frjálsu trygginganna móti van- gerð eða ófullkomleika hinna almennu skyldutrygginga. Kostir beggja þessara tryggingaforma samanlagðir veita fullkomnustu tryggingaverndina á hverju sem veltur. Baldvin Þ. Kristjánsson. 46

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.