Æskan - 01.07.1976, Blaðsíða 5
™» Hvenær gerðist það fyrst?
Fyrstir á
Suðurpólinn
þangað náðu fyrstir Roald Amundsen og félagar
hans, þeir Olaf Bjaaland, Helmer Hansen, Óskar
^isting og Sverre Hassel, en þessi flokkur heim-
stautafara hélt af stað í þessa frægu för í júní 1910.
^yrst var ætlun þeirra að reyna við Norðurheimskaut-
en er þeim barst frétt um það, að Robert Peary
Vasri þegar kominn þangað, breyttu þeir ferðaáætl-
Un sinni og sneru í suðurátt.
þeir áttu fyrstu vetrardvöl sína við Hvalaflóa, sem
er á Suðurskautslandinu vestanverðu. Næsta vor
fóru þeir í ýmsa leiðangra í átt að Suðurskautinu
°9 skildu þá eftir matarforða og annað það, er þeir
hurftu á að halda í heimskautsferðinni, sem ákveðin
ver um haustið.
Hinn 20. október 1911 héldu þeir svo af stað og
nöfðu meðferðis 4 sleða, en hvern þeirra drógu 13
nundar. .Þeir flýttu ferðinni svo sem mögulegt var,
Ve9na þess að þeim hafði borist frétt um það, að
Robert Falcon Scott væri einnig á leið að pólnum
°9 hefði hann fullan hug á því að verða fyrstur
manna þangað.
lentu Amundsen og félagar hans í kröppum
'■jansi og hættum á þessari ókunnu leið. Hansen t. d.
norfQist í augu við dauðann, þegar hundaæki hans
®tökk yfir jökulsprungu, en rann síðan, vegna áfloga
bundanna innbyrðis, niður í ísgjána. Félögum hans,
sem komu hlaupandi til hjálpar, tókst þó að ná bæði
hundum og manni og sleða upp úr sprungunni.
Á ferðinni yfir ísbreiðuna fórust 24 hundar af ýms-
um orsökum.
Þegar Amundsen og félagar hans komu á Suður-
pólinn 15. desember 1911, voru þeir þreyttir, en glað-
ir yfir því, að markinu var nú náð. Þeir drógu upp
norska fánann og skildu eftir kveðju til Scotts, sem
kom þangað nokkrum vikum seinna. Scott og fé-
lagar hans létu lífið á heimleiðinni frá Suðurpólnum
sem kunnugt er.
Stórstúkan telur að besta og áhrifamesta bindindis-
°ðunin sé að vera sjálfur bindindismaður i orði
°9 verki. Það er skoðun stúkunnar að sérhver bind-
'ndismaður geri almenningsálitið bindindissinnaðra
°9 aS almenningsálitið sé máttugasta vopnið gegn
nfdrykkju. Viðhorf hins opinbera í þessum málum
e,ur stúkan að hafi mikið að segja, til dæmis só
hað mjög jákvætt að menntamálaráðuneytið og ýmis
baejarfélög hafa lagt niður áfengisveitingar í veisl-
Urn sínum.
Næstu verkefni Stórstúkunnar eru að lögð verður
hersla á að efla starf hennar í heild og hafa sem
mest ahrif á hugsunarhátt almennings, bindindis-
^álum í hag. Langtímamarkmið væri að áfengi yrði
ahs ekki haft um hönd hér á landi, þótt Ijóst væri
því fengist ekki framgengt á næstunni.
Stúkurnar innan Stórstúku (slands eru opnar hverj-
Urn sem vill án tillits til trúarskoðana og stjórnmála-
skoðana, ef hann aðeins tjáir sig hlynntan friði í
heiminum og bræðralagi manna og er bindindismaður
á áfengi og aðra vímugjafa.’
Stórstúkan hefur í meira en 75 ár gefið út barna-
blaðið Æskuna, og er á vegum blaðsins rekin verslun
með bækur og ritföng að Laugavegi 56 í Reykjavík.
Gamla GóStemplarahúsiS í Reykjavík.