Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1978, Blaðsíða 41

Æskan - 01.11.1978, Blaðsíða 41
strætið, gamla konan og barnið. í út- iaðri þorpsins lögðu þær leið sína eftir VeQi, sem lá niður að uppþornuðum árfarvegi. Ég klifraði upp á hæð eina °9 sá mér þá til undrunar, að fleira fólk var komið á staðinn og vann af kappi meö haka og skóflu í tinnu- hörðum gilbotninum. María og litla stúlkan lögðu frá sér körfurnar og tóku til vinnu. í fyrstu hélt ég að þær v®ru að grafa eftir einhvers konar óeitu, en svo tók ég eftir, aö telpan fór sö fylla litlu körfuna sína með hvítum sandi, meðan gamla konan fyllti sína at hvítum teningslaga steinum, sem óún virtist velja af mikilli vandvirkni. þegar þær höfðu fyllt körfurnar, lyftu Þaár byrðunum á axlir sér og lögðu af stað upp brattan og þröngan stíginn. Þær gengu fast fram hjá mér, en gáfu mér þó engan gaum, frekar en Þær vissu ekki af mér. Þegar þær voru komnar spölkorn fram hjá mér, hélt ég í humátt á eftir þeim. Leiðin lá upp á hæð, er var slétt að °fan, og sá þaðan út yfir allt þorpið. þangað haföi ég ekki komið fyrr á gönguferðum mínum, en þessi staður v'rtist sá eini á stóru svæði, sem var óspilitur af sprengjum og öðrum styrjaldarmerkjum. í akasíulundi nokkrum þarna uppi á hæðinni var roikill fjöldi þorpsbúa að verki. Þeir Unnu þarna hljóðlega og lágmæltir að Þvi að blanda steypu og höggva til Þina fallegu, hvítu steina, og hlóðu úr Þeim veggi að nýrri og mikilli bygg- ir>gu. Allar aðfarir þeirra höfðu á sér einkennilegan hátíðleikablæ. Mér var í fyrstu ráðgáta, hvað fólkið væri að gera, en skyndilega varð mér 'ióst, af því litla sem búið var að reisa, Þvers konar bygging var að rísa þarna a{ grunni. Ég greip andann á lofti. þetta fólk, sem hafði naumast þak yfir höfuðið og var svo grátt leikið af styrjöldinni, sem raun bar vitni, þess- ar konur, börn og gamalmenni, sem í ^ínum augum voru einungis sigraðir °g útdauðir skuggar, höfðu valið sér sem sitt fyrsta verkefni að reisa með eigin höndum nýja og veglega kirkju. Ekki bænahús til bráðabirgða, heldur ÍTT' fegurra og stærra guöshús en þeir höfðu nokkru sinni fyrr átt. María og litla telpan tæmdu körf- urnar sínar. Þær staðnæmdust ofur- litla stund til að kasta mæðinni, svo lögðu þær af staö eftir nýrri byrði. Um leið og gamla konan gekk fram hjá mér, með svitaperlur á enni sér, leit hún skyndilega til mín og brosti örlítið við mér. Mér fannst vera ögrun í brosinu, eins og hún vildi segja: ,,Er- um við kannski búin að vera, eða hvað?" Mér fannst ég geta lesið alla ævi hennar út úr þessu eina tilliti, for- tíðina, nútímann og framtíöina. Þarna var hugrekki og þrautseigja, trúnað- artraust og þolinmæði, vilji til að lifa frá degi til dags og sætta sig við það, sem að höndum bar, en umfram allt trúin. Ég stóó þarna vandræðalegur og auðmýktur í sömu sporum, þar til gamla konan og barnið hurfu mér sjónum. Og ég fékk samviskubit fyrir bölsýnishugsanir mínar. Hverju skipti rústirnar og eyðileggingin þegar á allt var litið? Úr því bæði ungir og gamlir sýndu slíka trú, þá var ekki vonlaust um framtíð mannkynsins. Ég stóð þarna langa stund, og þegar ég gekk ofan hæðina aftur fullur bjartsýni, var fyrsta kvöldstjarnan að koma í Ijós á einum eilífa himni. Og í daufri kvöld- skímunni fannst mér hið eyðilega þorp hverfa, en í stað þess reis fyrir innri sjónum mínum hin skínandi borg andans. A. J. Cronin Þýtt úr Reader’s Digest Hvaða ungi fær brauð- bitann, sem maðurinn heldur á?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.