Æskan - 01.11.1978, Side 90
Árás beint að framan. Hælar saman.
Hnén út og líkaminn beygður fram.
Líkamsþunginn réttilega hafður á
þeim fæti, sem árásin er gerð með.
menn. Bakverðir mynda styrkan
varnarvegg og njóta stuðnings tengi-
liða, en sóknarmenn einbeita sér að
sókn að marki mótherjanna.
Reglur. Greinar alþjóða knatt-
spyrnulaganna eru 17 að tölu. Um
innanhússknattspyrnu gilda sérreglur
KSÍ. — Lið skipa 11 leikmenn: 1
markvörður og 10 útileikmenn. Heim-
ilt er að skipta um 2 leikmenn í hvoru
liði, meðan á leik stendur. — Leiktími
er tvö jöfn 45 mínútna tímabil í leik
fullorðinna, en styttri í yngri aldurs-
flokkum. Hlé á milli hálfleikja má ekki
vera skemmra en 5 mín. Eftir leikhlé
skipta liðin um mark.
Stjak með öxl réttilega notuð.
Albert Guðmundsson, er fæddur 5.
október 1923. Hann er frægasti
knattspyrnumaður Islands og fyrsti
íslendingurinn, sem gerðist atvinnu-
maður í íþróttum (1947—1954). Var
um tíma einn frægasti og tekjuhæsti
knattspyrnumaður Evrópu, var tví-
vegis Frakklandsmeistari (með
Nizza), en þar í landi hlaut hann við-
urnefnið „hvíta perlan" vegna snilli
sinnar. Albert hóf feril sinn erlendis
með Glasgow Rangers og Arsenal
(1945—1946). Árið 1947 gerði hann
atvinnusamning við Nancy í Frakk-
landi og lék siðan allt til 1956 með
Milan á Ítalíu, Racing Club og Nizza í
Frakklandi og með þessum liðum í
mörgum löndum. Var formaður KSÍ
1968—1973.
••
Innvarp. Þegar knötturinn fer allur
yfir hliðarlínur, annað hvort með jörðu
eða í lofti, er hann úr leik, og skal
honum komið í leik á ný með því að
varpa honum inn frá þeim stað, er
hann fór yfir hliðarlínu. Skal mótherji
þess leikmanns, er siðast snerti
knöttinn, varpa honum inn í hvaða
stefnu sem er. í því vetfangi sem inn-
varpari varpar knettinum frá sér,
verður hann að snúa að leikvelli,
inn á völiinn, en snúist í mjöðmunum
á síðustu stundu til þess að villa
andstæðingana, og varpar til hliðar.
Takið eftir því, að lófarnir eru vel bak
við knöttinn og hnén beygð, til þess
að hreyfingarnar verði mýkri.
einhver hluti beggja fóta skal vera
annað hvort á hliðarlínunni eða a
jörðu utan hennar. Beita skal báðum
höndum við innvarpið og varpa
knettinum jafnt yfir höfuðið.
Markspyrna. Þegar knötturinn hef-
ur allur farið yfir marklínu utan mark-
súlna, hvort sem er í lofti eða með
jörðu, skal dæma markspyrnu, ef
Dæmi um ólöglega notkun hand-
leggs.