Æskan - 01.04.1981, Qupperneq 35
U.'_ ’
■ 'uanæoi sveitarinnar heitir Glaumbær og stendur vlð Kaldbaksgötu.
^átti alltaf sjá hverjir hefðu nægilega
Þjálfun til að takast á hendur þau
Verkefni sem upp komu.
1 upphafi var hugmyndin sú að
Sveitin yrði léttvopnuð göngusveit.
^élagarnir skyldu sjálfir eiga nauð-
synlegan einstaklingsbúnað og ef
fara þurfti lengra til var farið á einka-
í'Urn- Síðar þótti æskilegt að sveitin
ei9naðist vélsleða. Þá þurfti kerru til
að flytja sleðana á um byggð og snjó-
ieysu og loks bíl til að draga kerruna.
Síöast en ekki síst þótti tilhlýðilegt að
falstöðvar væru tiltækar þannig að
hafa
mætti samband við leiðangra.
þannig hlóö þetta smátt og smátt
utan á sig og birtist hér yfirlit yfir eignir
^ær. sem sveitin hefur aflað sér á
starfstíma sínum.
Á árinu 1972 voru keyptir fjórir vél-
sleðar. Síðar eignuðust einstaklingar
innan sveitarinnar þá á góðum kjör-
um, með þeim skilyrðum að þeir væru
ávallt viðbúnir til notkunar í þágu
sveitarinnar. Á sama ári eignaðist
sveitin sinn fyrsta bíl. Það var Dodge
power wagon með tvöföldu húsi.
Hann var seldur sama ár.
Eftir áramótin 1974—75 keypti
sveitin tvo Lynz vélsleða með lengdu
belti. Þá var formlega stofnuð véla-
deild sveitarinnar. Starf hennar er að
hafa umsjón með viðhaldi vélknúinna
tækja sveitarinnar. í maí 1975 fékk
sveitin inni fyrir vélsleða sína en það
var í bragga sem Rarik á. Eftir ára-
mótin 1975—76 fékk sveitin % hluta
braggans til afnota og var þá strax
hafist handa við að innrétta húsnæð-
ið. Fyrsti fundurinn var haldinn þar í
febrúar.
2. mars 1976 afhenti Slysavarna-
Tryggvi Þorsteinsson
Það var aðallega fyrir áeggjan Tryggva heitins Þorsteinssonar f.v.
skólastjóra og skátaforingja sem Hjálparsveit skáta á Akureyri var
stofnuð. Trjggvi hafði áður gengist fyrir stofnun Flugbjörgunar-
sveitarinnar á Akureyri. Á stofnfundi Hjálparsveitarinnar flutti
Tryggvi erindi um skíði og skíðaútbúnað og þar hvatti hann fund-
armenn til að eignast gönguskíði en á þeim árum var oft talað fyrir
tómum eyrum þegar minnst var á slík skíði.
Tryggvi Þorsteinsson.
deild kvenna á Akureyri, HSSA snjóbíl
til eignar. Hún hafði átt hann lengi, en
hann hafði þá verið rekinn af ein-
staklingum í mörg ár. Fékk nú véla-
deildin nóg að gera, því segja má að
snjóbíllinn hafi algerlega verið tekinn í
gegn. Hann hefur verið mikið notaður
og reynst vel. Á síðasta ári var sett
stærri vél í snjóbílinn.
Húsnæði það sem sveitin fékk hjá
Rarik var formlega tekið í notkun 25.
mars 1976 og var við það tækifæri
skýrt Glaumbær. í desember 1976
keypti HSSA International Scout
station, bifreið með drifi á öllum hjól-
um. Þetta var notuð bifreið, en ,,Nall-
inn" eins og hann var kallaður, átti
eftir að gera marga góða hluti. Hann
reyndist vel og eru margar góðar
minningar tengdar honum. Hann var
seldur út í happdrætti 17. júní 1979.
29