Æskan - 01.04.1981, Blaðsíða 42
1300 ÁRA AFMÆLI BÚLGARSKA RÍKISINS
Áriö 1981 er mikið hátíðarár í Búlgaríu, en þá minnast
þeir þess, að 1300 ár eru liðin frá stofnun búlgarska
ríkisins. Búlgarar eru reyndar eins og flestar þjóðir upp-
runnar í Asíu. Eiga sér langa og viðburðaríka sögu.
Teljast til slavneskra þjóða og er mál þeirra einnig
slavneskt. Þeir hafa haldið vel saman sem þjóð, en ná-
grenni þeirra við Grikki, Rómverja o. fl. hefur sett sinn
svip á þjóðernið. Þeir eru grísk-kaþólskir og hefur kirkja
og sterkt ríkisvald löngum sett sinn svip á líf þjóðarinnar.
í dag er Búlgaría sósíalistiskt lýðveldi með forseta og
ríkisstjórn, ásamt þingi í einni deild. Landið skiptist í
mörg héruð og hafa þau tiltölulega sterka sjálfsstjórn um
sín innri mál. Stjórnin er skipuð fulltrúum frá þjóðfylk-
ingunni, en í henni eru verkamannaflokkurinn, bænda-
flokkurinn og ýmis samtök fólksins, m. a. kirkjan.
Landiö er ámóta stórt og ísland eða um 110.842 ferkm.
Láglent við ströndina, en upp frá henni ganga dalir milli
fjögurra fjallgarða, djúpir, því fjöll eru þarna allt upp
undir 2800 m há hæst, en austar í landinu eru hásléttur
milli fjallgarðanna í svona 500—600 m hæð yfir sjávar-
máli. Landið er frjósamt og vel til ræktunar fallið, enda
mikið landbúnaðarland. Fjöll eru víða skógi vaxin.
Náttúrufegurð víða mikil, vötn, skógar og ár sumar fullat
af fiski og villt dýr lifa þarna uþpi í fjöllum, m. a. skógaf-
birnir.
Loftslagið er tiltölulega milt, einkum við ströndina, sem
liggur við Svartahaf. Þar er sannkallað Miðjarðarhafs-
loftslag, heit sumur og mildir vetur, enda vaxa þar ýmsar
suðrænar jurtir og ræktaðar þar, m. a. tóbak og rósir.
Á meginlandinu eru hins vegar heit sumur og kaldir
vetur, mikil hreinviðri, þó snjóar drjúgt til fjalla og eru þar
miklir skíðastaðir svo sem Pomparovo, Borovets og
Vitosha, sem er við höfuðborgina Sofiu um 20—25 mín-
akstur í skíðalöndin.
Sofia er núverandi höfuðborg landsins með um 1
milljón íbúa, en í landinu búa um 8,2 milljónir, mest
megnis Búlgarar, en einnig minnihlutaþjóöflokkar svo
sem Tyrkir, Makedoniumenn o. fl.
Búlgarska þjóðin hefur eflst á ýmsum sviðum frá því er
hún stofnaði alþýðulýðveldið. Þunga- og léttiðnaður
hefur vaxið að mun, bæði tæknilega og að magni og eru
þeir orðnir útflytjendur á mörgum sviðum. Árlega halda
þeir vörusýningu í Plovdiv og er 'hún með þeim stærstu.
Einnig taka þeir mikinn þátt í mörgum alþjóðlegum
vörusýningum erlendis.
Mynt þeirra er lev (flt. leva) og eru í henni 100 stotinki-
Gengi hennar gagnvart ísl. krónu hefur verið óskráð en
ef höfð er hliðsjón af US$ þá samsvarar 0,83 lev einum
US$
Viðskipti okkar við Búlgaríu hafa ekki verið mikil, en þó
36