Æskan - 01.04.1981, Page 50
TANNVIÐGERÐIR
Skemmda tönn á að lagfæra.
Venjulega eru tannfyllingar í jöxlum
gerðar úr blöndu af kvikasilfri og dufti
sem samanstendur af silfri, kopar,
sínki og tini. Efnablanda þessi nefnist
amalgam. Vegna útlits eru fram-
tannafyllingar hafðar Ijósleitar. Þess-
ar fyllingar eru úr plastefnasambönd-
um. Þær endast yfirleitt nokkru
skemur en amalgamfyllingar. Sterk-
ustu (einnig dýrustu) tannfyllingarnar
eru steyptar gullfyllingar. Stundum
getur tannskemmdin orðið svo um-
fangsmikil að byggja þarf upp alla
tönnina. Þá er gerð króna.
RÓTFYLLING
Hafi tannskemmd náð djúpt inn í
tannbeinið getur tannkvikan sýkst.
Bólga í tannkvikunni veldur oft tann-
pínu. Sjúka tannkviku verður að fjar-
lægja úr tönninni. Tannholið er svo
sótthreinsað og fyllt með efni sem
ekki ertir líkamsvefina. Þetta er rót-
fylling. Rótfyllingar eru tímafrekar og
vandasamar aðgerðir og því er mikil-
vægt að tannskemmdir séu lagaðar á
byrjunarstigi til þess að komast megi
hjá þeim.
TANNDRÁTTUR
— BRÝR
Ef tönn er svo mikið skemmd að
ekki er hægt að gera við, þarf að
draga hana. T. d. ef krónan er brunn-
in burtu, tannkvikan sýkt og sýkingin
komin í kjálkabeinið. Missir tannanna
skilur eftir bil í tannröðina. Tennurnar
næst skárðinu vilja ,,halla“ sér í þaö.
Öll röðin getur riðlast. Samanbit
tanna í efri og neðri kjálka getur
skekkst.
Hér þarf að búa til brú. Brú þýðir
gullkróna á tennur beggja vegna
bilsins og á þær festist „sviftönn"
sem lokar því.
Hjá augnlækninum. —
Getið þér heldur ekki lesið
það, sem stendur í næst efstu
línunni?
— Nei, fröken.
Frænkan: Ef ég má kyssa þig,
Eiki litli, skal ég gefa þér 5 krón-
ur.
Eiríkur: 5 krónur — ég sem fæ 10
krónur fyrir að taka inn lýsi!
Þér náið ekki skónum af
fætinum. Ég sé ekki annað
ráð en að þér kaupið skóna
og við sláum helmingnum af
verðinu.
Skrýtlur.
— Hm, þið eruð kannsk'
tvíburar?
— Nei, við sækjum báðar
sömu snyrtistofuna.
44