Æskan - 01.04.1981, Síða 52
MYNDIR ÚR „ÞÚSUND OG EINNI NÓTT“ I.
Fyrsta ferð Sindbaðs farmanns.
1. Sindbaö farmaöur, er siglt haföi um ölj höf undir sól-
unni, bjó í fyrndinni i borginni Bagdad. Á yngri árum lenti
hann í mörgum ævintýrum. Ásamt öörum kaupmönnum
lét hann í haf á skipi einu, til þess aö selja dýrmætar vörur
frá Bagdad og Arabíu, og til þess aö leita ævintýra.
2. Þaö var einhvern dag, er skipið var á siglingu, aö allt í
einu sló í blæjalogn, og var þetta nálægt lítilli ey, er bar
lágt yfir sjávarmál. Var hún græn eins og engjateigur. Lét
þá skipstjórinn hlaöa seglum og leyfði öllum á land að
ganga, þeim, er vildu.
3. Sindbað var einn í tölu þeirra, er á land gengu. Sátu
menn nú og átu og drukku sér til hressingar eftir sjó-
volkiö. Þá kipptist eyjan við allt í einu gríöarhart, og
hnykkti sjómönnum illa viö. Urðu þeir þess varir, aö þaö
er þeir hugöu ey vera, var ekki annað en bak hvalfisks
nokkurs.
4. Þeir, sem fimastir voru, stukku út í bátinn, en sumir
björguöu sér á sundi og náöu þannig til skipsins. En
vesalings Sindbaö varö eftir. Náöi hann meö naumindum
í viðardrumb einn, þegar hvalurinn stakk sér. Nú rann á
blásandi byr og skipið sigldi burt í skyndi.
5. Sindbaö var ofurseldur öldum hafsins, og hröktu þær
hann á ýmsa vegu, en að lokum varp ein þeirra honum í
land. Var hann þá aðfram kominn, en hresstist brátt
og lenti í ýmsum ævintýrum, en komst loks til höfuö-
borgarinnar á konungs fund, og bauð konungur honum
meö sér aö vera.
6. Einn góöan veöurdag stóö Sindbaö einn niöur viö sjó,
og sigldi þá skip nokkurt inn í höfn. Þekkti Sindbað, að
þar var komið hans eigiö skip. Haföi skipstjóri selt vörur
hans meö góðum hagnaði. Sigldi Sindbað nú brátt í aöra
för, er viö fáum aö heyra um í næsta blaði.
46