Æskan - 01.09.1983, Blaðsíða 6
VINSAMLEG TILMÆLI UM GREIÐSLU ÁSKRIFTARGJALDSINS
Við biðjum þá fáu, sem enn eiga eftir að greiða áskriftargjald Æskunnar 1983, að
gera skil sem fyrst. Athugið að skilvísi er skilyrði fyrir þátttöku í áskrifendagetraun og
bókaklúbbi.
Ef gíróseðill hefur glatast má senda greiðslu, 450 kr., á hvern venjulegan hátt til
Æskunnar, pósthólf 14, 121 Reykjavík. Gætið þess að rita nafn og heimilisfang.
/ vor hétt Iðnskólinn í Reykjavík kynningu á því námi sem þar er
í boði. Margir lögðu leið sína í skólann og fylgdust með nemum að
störfum. Þessi kynning er fyrir þá sem hafa hug á iðnskólanámi
og einnig fyrir annað áhugafólk.
Verknámsdeildir í Iðnskólanum eru sex. Þær eru: Tréiðnaðar-
deild, rafiðnaðardeild, hársnyrtideild, bókagerðardeild, fataiðnað-
ardeild og málmiðnaðardeild. Sú síðastnefnda er fjöimennust.
Einnig er gefinn kostur á fornámi, almennu námi og
tækniteiknaranámi í skólanum. Síðasta vetur voru 1162 nemend-
ur skráðir á haustönn en 994 á vorönn. Aðsókn er mikil og komast
færri að en vilja. - Skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík er Ingvar
Ásmundsson.
Þessar myndir, ásamt stuttum viðtölum, voru teknar á náms-
kynningardögunum.
Þetta er hún Dagný Þrastardóttir. Hún er aö læra húsgagna-
smíði og segir að kvenfólki sé alltaf að fjölga í þeirri grein.
Námið tekum fimm annir, þar af tvær verklegar. Áður en
sveinspróf er tekið, þarf húsgagnasmíðanemi að hafa 18
mánaða starfsreynslu að baki. „Sumir voru undrandi á mér
að fara í þetta nám,“ sagði Dagný aðspurð. „Öðrum fannst
þetta ofsa klárt af mér. Ég get ekki annað sagt en að námið
sé mjög skemmtilegt". Dagný sagðist ekki vita hvort hún
ætlaði að starfa við húsgagnasmíði í framtíðinni.
SETNING
Tækninni hefur fleygt fram. Tölvusetning hefur að mestu
tekið við af blýsetningu. Með tölvum má ná meiri hraða °9
fjölbreytni. Áður en blað eða bók verður til þarf að set|
textann inn á svona tölvu. Það er fyrsta stig prentunarinnar-
UMBROT ,g
Hér er verið að líma upp á blað (brjóta um). Búið er að se J
textann og nú er verið að líma hann inn á síður. Þið vitið a
fáar síður í tímaritum eða dagblaði líta eins út. Við getum Þe
vegna talað um að þarna sé verið að hanna blaðsíður.
LITIÐINNIIÐNSKOLANN