Æskan - 01.09.1983, Blaðsíða 44
Bubbi.
Þá fer aö styttast í að Poppbókin
margrómaða komi á markað. í
Poppbókinni kennir margra grasa. Þar
eru m. a. frásagnir Bubba Morthens,
Ragnhildar Gísladóttur, Egils Ólafs-
sonar, Árna Daníels, Magnúsar Eiríks-
sonar, Sigga pönkara o. fl. Þau hafa frá
mörgu forvitnilegu að segja um feril
sinn í poppinu og viðhorf til ýmissa
hluta er tengjast poppvettvanginum.
f Poppbókinni útskýrir Vilhjálmur
Guðjónsson Galdrakarl muninn á hin-
um margvíslegu músíkstílum poppsins.
í bókinni er einnig að finna útskýringar
á hlutverkum hinna fjölskrúðugu fagfé-
laga popparanna, s. s. FÍH, SATT,
STEF, FHS, o. s. frv. Þar eru líka listar
yfir hljóðritunarver á íslandi, hljómplötu-
útgáfur o. fl.
Ragnhildur.
í bókinni er jafnframt listi yfir helstu
poppplötur sem út hafa komið hér-
lendis og 25 viðurkenndir poppsérfræð-
ingar útnefna bestu íslensku poppplöt-
ur allra tíma. Óhætt er að fullyrða að
þar er um merkilegar niðurstöður að
ræða.
Þá eru söngtextum gerð ítarleg skil,
saga poppsins á íslandi er rakin í stór-
um dráttum og margt, margt fleira er að
finna í þessari einu og sönnu íslensku
Poppbók.
Siggi.
fer að koma út i
í UMSJÓN JENS GUÐMUNDSSONAR
44