Æskan

Volume

Æskan - 01.09.1983, Page 15

Æskan - 01.09.1983, Page 15
Kári litli og Lappi eftir Stefán Júlíusson. Halldór Péturs- Sen myndskreytti. ^önduð sjöunda útgáfa hinnar sígildu sögu. Listaverk I máli og myndum. Ein öesta og vinsselasta íslenska barna- bókin. Aðrar bækur Stefáns verða gefnar út a næstu árum, þ. á m. tvær um Kára. 92 bls. Félagsverð kr. 148.20 (al- mennt 185.20). Einkum 6-11 ára. Ti' fundar við Jesú frá Nasaret Höfundur Paul Leer-Selvesen. Þýð- ln9 Rúna Gísladóttir. Fyrsta bókin í flokki ævisagna. Hæstu bækur verða um Chaplin, The eatles (Bítlana) og Martin Luther ^'n9- Bókin er einkar skemmtilega skrifuð. Hún er að ýmsu leyti ólík því sem við höfum áður lesið um Jesú. 112 bls. Félagsverð kr. 237.10 (al- mennt verð 296.40). 8~14 ára. IASSI l j BARÁTTU! Lassi I - ( baráttu Thager Birkeland, virtan og marg Verðlaunaðan danskan rithöfund. ýðandi Sigurður Helgason. Bókin (sú ^sta af þremur) fjallar um Lassa sem ytur til borgarinnar úr þorpi úti á landi. trfiðleikar í fjölskyldulífi og óblíðar mót- °kur borgarbarna leiða til þess að assi á í harðri baráttu við umhverfið og n'ö innra með sér. 128 bls. Félagsverð 237.10 (almennt Verö 296.40). Hnglingabók (frá 12 ára). Poppbókin - í fyrsta sæti Jens Kr. Guðmundsson skráir. Saga poppsins hér á landi rakin frá því að Hljómar hófu að leika Bítlalögin. Viðtöl við vinsæla tónlistarmenn - m. a. Bubba, Ragnhildi og Egil Ólafs- son. Tuttugu og fimm áhuga- og kunnáttumenn um tónlist velja bestu poppplötuna. Bókin sem áhugafólk á öllum aldri hefur beðið eftir. Félagsverð 474.20 (almennt 592.80). Ólympíuleikarnir eftir dr. Ingimar Jónsson. Sagt frá Ólympíuleikunum að fornu og nýju - minnisverðum atvikum og afrekum. Þátttöku íslendinga gerð sér- stökskil. Fiöldi mynda. Ólympíuleikarn- ir eru á næsta ári, vetrarleikarnir hefjast í febr. Þetta er tilvalin bók fyrir íþrótta- unnendur á öllum aldri. Félagsverð 632.30 (almennt 790.40). 790.40). Við klettótta strönd Mannlífsþættir undan Jökli. Eðvarð Ingólfsson skráir. Hinn ungi, vinsæli rithöfundur og út- varpsmaður reynir nú fyrir sér á nýjum vettvangi. Útvarpsþættir hans um mannlíf undir Jökli vöktu verulega athygli á síðasta hausti. Höfundur hefur aukið við frásögnum um landsvæðið og fólk undir Jökli á fyrri tíð. Þetta er einkar skemmtileg og eiguleg bók. Félagsverð 632.30 (almennt 790.40). Við erum Samar. — Samabörn segja frá Höfundar Boris Ersson og Birgitta Hedin. Ólafur Haukur Árnason íslensk- aði. í bókinni er lífi Sama (Lappa) lýst í máli og mjög fallegum myndum. Marga mun án efa fýsa að kynnast nánar lífs- háttum þessa fólks sem frá örófi alda hefur lifað á veiðum og hreindýrarækt. Nú er landi þeirra skipt á milli Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Sovétríkjanna. Samt telja Samar sig sérstaka þjóð . . . 48 bls. Félagsverð kr. 256.90 (al- mennt 321.10). Frá 7 ára . . . (Aðallega til 12 ára). Margs konar dagar eftir Rune Belsvik í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Belsvik er norskur og hefur fengið mjög góða dóma fyrir bækur sínar. í bókinni er á spaugilegan hátt sagt frá bæði skemmtilegu og erfiðu, dimmu dögunum í lífi barna í smábæ norðar- lega í Noregi. 160 bls. Félagsverð 237.10 (almennt 296.40). Fyrir 9-13 ára. Kapphlaupið eftir Káre Holt í snilldarþýðingu Sigurð- ar Gunnarssonar. Afar spennandi og jafnframt ákaflega vel gerð heimildarskáldsaga um ferðir Amundsens og Scotts á Suðurskautið 1909-1910. Sagan naut mikilla vinsælda er þýðandi las hana í útvarp 1979. Félagsverð 474.20 (almennt verð 592.80). 15

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.