Æskan

Årgang

Æskan - 01.09.1983, Side 19

Æskan - 01.09.1983, Side 19
Þór Jakobsson: INNGANGUR Með þessu hefti Æskunnar, septemberblaðinu, hefst verkefni sem við í framkvæmdanefndinni ^onum að margir vilji taka þátt í. Hér á eftir fylgir °nnur grein með leiðbeiningum svo að vonandi verður öllum Ijóst hvað við er átt. Sams konar Vei"kefni var prófað í Kanada fyrir nokkrum árum hieð góðum árangri en stefnt er að því að fá ^iklu fleiri með hér á landi, ungt fólk og gamalt víös vegar um land. Til hjálpar ættu þátttakendur að velja sér eins konar umsjónarmann, foreldri, kennara eða ein- hvern annan fullorðinn mann sem þeir þekkja vel. Umsjónarmaður á að sjá um að verkefni, sem a annað borð hefst, verði lokið á skikkanlegum tínia og verði öllum sem hlut eiga að máli til anaegju og vegsauka. Ég er viss um að ykkur mun þykja fróðlegt að rabba við gamla fólkið því að það hefur svo ^argt á daga þess drifið sem jafnvel foreldrar ykkar hafa aldrei heyrt um. Eins og þið líka vitið breytist svo margt með tínianum. Löngu seinna verða viðtölin ykkar Þetta er framkvæmdanefnd Gagnvega. Talið frá vinstri: Dr. Þór Jakobsson, Eðvarð Ingólfsson, Niels Árni Lund, Agnes M. Sigurðardóttir. verðmætar upplýsingar um ykkur og ekki síst um gamla fólkið sem þið heimsækið eða spjallið við heima fyrir - fólkið sem var ungt í gamla daga. En hafið ekki hugann við þá staðreynd. Reynið frekar að njóta samfundanna við „söguhetjuna“ ykkar. Kynnist henni og segið henni frá sjálfum ykkur. Æfið ykkur að segja frá og verið óhrædd að skrifa eins og ykkur finnst eðlilegt. Tilgreinið aldur ykkar þegar þið sendið ritgerðina, viðtalið, en athugið vel: Þetta er ekki keppni um verðlaun heldur skemmtileg samvinna ungra og gamalla út um allt land, - fyrir sunnan, vestan, norðan og austan. Verið með og gangi ykkur vel! Þór Jakobsson '.V■■••i•i ....................... ;»Xv*.*IvM*MvM*XvX#MvMvX*MvXvM*IvXvX*X*.v.*.v a nafni Tsmunir k ft. T ^3 hagur, gagn. gagnvegur k, beinn vegur^ stytzta leið; f tveim gagnvegu ii::íi:íitvisvar sinnum. -verkun kv, áh í gagnstæða átt. -verkandi. hvor (hver) á annan- ^ramkvæmdanefnd þótti hentugt að láta verkefnið 9dnga undir vel völdu nafni sem menn könnuðust við Þegar þeir heyrðu getið um verkefnið öðru sinni. ^rnsar góðar tillögur sáu dagsins Ijós en sú sem varð fVrir valinu var orðið „gagnvegir Gagnvegur kann að þykja torskilið orð en það Þýðir „beinn vegur, stysta leið" og er notað hér í ^knrænni merkingu. Það kemur fyrir i fornum ritum f°rfeðra okkar en í Hávamálum er komist svo fallega að orði: „en til góðs vinar liggja gagnvegir, “ Orðið „gagnvegir" hefur ekki verið notað mikið í málinu undanfarið en þið kannist sjálfsagt við orðið „gagnkvæmur", samanber gagnkvæm vinátta. Svava Jakobsdóttir rithöfundur stakk upp á þessu nafni á verkefnið, „ GAGNVEGIR - samtöl ungra og gamalla - og kunnum við henni þakkir fyrir. 19

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.