Æskan - 01.09.1983, Blaðsíða 40
BYRJIÐ AÐ SAFNA!
Æskupóstur!
Ég tel mig hafa ráö fyrir iðjulausa
krakka. Byrjið að safna!
Ef þið hugsið vel um safnið ykkar
getur þetta orðið mjög skemmtilegt.
Það er t. d. hægt að safna spilum, frí-
merkjum, límmiðum, eldspýtustokkum,
nælum, póstkortum, dýramyndum,
timaritum, módelum, plakötum, upp-
skriftum og töppum. Sem sagt öllu milli
himins og jarðar.
Þórarinn Stefánsson 10 ára.
TENGDAPABBINN LÖGGA?
Kæra Æska!
Er það satt að tengdapabbi hans
Bubba sé lögga? Var Bubbi að syngja
um konuna sína í laginu Blús fyrir Ingu?
Þá er það ekki meira í þetta skipti.
Bubbaaðdáandi
Bubbaaðdáandi
Tengdafaðir Bubba rokkkóngs er
Friðjón Guðröðarson sýslumaður í
Skaftafellssýslu. Þar af leiðandi telst
tengdafaðirlnn vera æðsta yfirvald
lögreglunnar í sýslunni. Dóttir Frið-
jóns og eiginkona Bubba heitir Inga
Sólveig. Þess vegna er ekkert því til
fyrirstöðu aö söngurinn Blús fyrir
Ingu sé um konuna hans Bubba.
TÍMAKAUP VIÐ BARNAPÖSSUN
Æskupóstur!
Mig langar að vita hvað 11-12 ára
stelpur fá á tímann fyrir að passa 2-5
ára börn.
í síðasta blaði var sagt að mætti
koma með uppástungur í blaðið. Mig
langar að fá fleiri skrítlur og viðtöl við
söngvara. Svo mega alveg koma plak-
öt t. d. með Grýlunum, Bubba, Ragn-
hildi, eða David Bowie.
Með þökk fyrir frábært blað,
Ragnhildur Hanna.
Ragnhildur Hanna.
Það er erfitt að segja til um hvað
11-12 ára stelpur fá á tímann fyrir
barnapössun. Það er misjafnt. Það
er nefnilega enginn samræmdur
taxti til. Sumar fá tímakaup en aðrar
ákveðna mánaðargreiðslu. Þetta er
yfirleitt samningsatriði milli barnapí-
unnar og foreldra barnsins. 14—15
ára stelpur fá kaup fyrir barnagæslu
oft í samræmi við þann taxta sem
notaður er í Vinnuskóla Reykjavíkur-
borgar.
Við þökkum uppástungur um efni
í blaðið. Eins og þú hefur væntan-
lega tekið eftir þá er plakat af Ásgeiri
Sigurvinssyni í þessu blaði. Við
höldum áfram á þessari braut og
vonandi áttu eftir að fá piakat af þín-
um stjörnum.
ART BEARS
Halló Æskupóstur!
Mig langar að fá upplýsingar um
hvað hljómsveitin Art Bears hefur gefið
út margar plötur. Ég á eina plötu með
þeim, The World as it is Today. Mér
finnst hún frábær. Eru aðrar plötur
þeirra eins góðar? Hvar er heimilis-
fangið hjá aðdáendaklúbb þeirra?
Kær kveðja,
S. S.
World as it is Today“ lang aðgengi-
legust og „poppuðust". Utanáskrift-
in til Art Bears er:
ART BEARS
583 Wandsworth Road
London SW8
England.
Það er eins með Art Bears og aðra
poppara að það yrði dýrt fyrir þá að
borga undir hundruð svarbréfa til
aðdáenda. Þess vegna er sjálfsögð
kurteisi þegar þeim er skrifað að
senda með frímerki og umslag með
utanáskrift ykkar á. Frímerkið verður
að vera svokallað alþjóðlegt svar-
merki. Það fæst á pósthúsum.
UM PENNAVINI
Kæra Æska!
Ég er hér með spurningu. Það er_i
sambandi við pennavinina erlendis. A
hvaða máli skrifa þeir?
Svo vil ég þakka gott blað. Kveðja,
Dóra.
Dóra
Þessu er ekki mjög auðvelt að
svara. Eitt vitum við þó fyrir víst;
erlend börn geta að minnsta kosti
skrifað okkur á móðurmáli sínU'
Hins vegar grunar okkur að þú eig,r
við hvort þau hafi möguleika á fle'rl
tungumálum. Það fer eftir því hvar
þau búa í heiminum. Margar þjóðir
eru mjög fátækar, t. d. í þriðja
heiminum, og þess vegna fá börnin
þar litla sem enga kennslu. Börn a
Norðurlöndunum sem eru komnir '
efri bekki grunnskólans geta yfirleitt
skrifað á ensku, svo dæmi sé nefnt-
Annars er best fyrir þig, ef Þu
skrifar erlendum pennavinaklúbb-
um eða pennavinadálkum blaðanna,
að nefna hvaða tungumál þú sjálf
getur skrifað. Þá ættirðu að eignast
pennavini eftir því.
S. S.
Þýsk-breska tríóið Art Bears hefur
gefið út þrjár plötur. Af þeim er „The
40