Æskan - 01.09.1983, Page 42
RAUF 90 METRA MÚRINN
íslandsmet Einars Vilhjálmssonar í spjótkasti,
90.66 m, sem hann setti í keppni milli Norðurlanda
og Bandaríkjanna í Stokkhólmi í sumar, ber af öðrum
frjálsíþróttaafrekum sumarsins. Þetta er áttundi besti
árangur í spjótkasti sem náðst hefur í heiminum í ár
og Einar er yngsti maðurinn sem kastað hefur spjóti
yfir 90 metra. Hann er rúmlega 23 ára. Einar er því
kominn í röð fremstu spjótkastara heims. Allar líkur
eru á að hann eigi eftir að bæta árangur sinn veru-
lega, því yfirleitt ná spjótkastarar bestum árangri á
aldrinum 26-30 ára.
„Velgengni mín er fyrst og fremst góðri ástundun
að þakka og ekki síst reglusemi, því hún er grundvall-
aratriði til að árangur náist,“ sagði Einar í viðtali við
Æskuna. „Ég byrjaði að æfa spjótkast 1976, árið
sem ég varð íslandsmeistari í sveinaflokki. Ég átti þá
heima í Reykholti og æfði á svokallaðri Eyri. Þá var
ég líka á fullri ferð í körfubolta og handbolta (Einar
var í unglingalandsliðinu í handbolta 1978).
1980 fór ég svo að æfa markvissa uppbyggingu
fyrir spjótkastið. Þá fékk ég góðar leiðbeiningar um
það hvernig best væri að haga æfingunum, því ég
æfði einn. Guðmundur Þórarinsson, Stefán Jóhanns-
son og Ólafur Unnsteinsson voru mér innan handar í
þeim efnurn."
STUNDAR NÁM í LÆKNISFRÆÐI
Einar varð stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti vorið 1980. Veturinn eftir fékkst hann við
kennslustörf. Vorið eftir var honum boðinn styrkur til
að stunda nám við háskólann í Texas í Bandaríkjun-
um. Einn af íþróttaþjálfurum við skólann kom hingað
til lands gagngert til að líta á hann.
„Þeir buðu mér styrk sem nægir fyrir náms- og
skólagjöldum," sagði Einar. „Öll læknishjálp,
aðstaða til íþróttaiðkana undir leiðsögn þjálfara, bún-
ingar og fleira eru ókeypis. Margir bjóða svona styrki
í auglýsingaskyni. Mikill áhugi er á frjálsum íþróttum í
Bandaríkjunum og það eykur hróður skólanna ef sig-
ursælir íþróttamenn stunda þar nám. Texas-háskóli
er rekinn fyrir bankavexti sem fást af olíutekjum.
Hann er rekinn eins og fyrirtæki, að vísu með svolitl-
um ríkisstyrk. Ég veit að hann er núna að fjárfesta í
demantsnámum víða í Afríku.“
- Hvaða nám leggurðu stund á?
„Ég les læknisfræði til B. S. prófs með lífeðlisfræði
sem aðalgrein. Ég er búinn með tvö ár. Síðan hyggst
ég fara út í sérnám og læra íþróttalækningar. Ég
kann mjög vel við mig þarna ytra.“
Einar sagði að þrír aðrir íslenskir frjálsíþróttamenn
væru við nám í Texas-háskóla. Það eru þeir Oddur
Sigurðsson hlaupari, Óskar Jakobsson kúluvarpari
og Ágúst Þorsteinsson maraþonhlaupari. Þeir eru
allir að læra íþróttafræði."
— En hvað segir Einar Vilhjálmsson um fram-
haldið?
„Markmiðið hjá mér núna er að Ijúka fyrrihluta
náminu í læknisfræðinni. í spjótkastinu mún ég svo
reyna að gera mitt besta."
Einar Vilhjálmsson er kvæntur Halldóru Dröfn Sig-
urðardóttur fóstru.
Að lokum skulum við skoða feril Einars í spjótkast-
inu. Hér er besti árangur hvers árs:
1976: 52.48 m
1977: 59.72 m
1978: 67.36 m
1979: 68.82 m
1980: 76.76 m
1981: 81.22 m
1982: 80.62 m (átti við meiðsli að stríða).
1983: 90.26 m (26. júlí).
Besti árangur í heimi: 99.72 m en það hefur ekki
verið staðfest sem heimsmet. Heimsmetið er skráð
96.72 m og það á Austur-Þjóðverji.
—E. I.
42