Æskan - 01.09.1983, Síða 49
HVAÐ viltu VERÐA?
i
Hjúkrunarfræðinqur
Æskunni hafa borist nokkur bréf þar
sem spurt er um hjúkrunarfræðinám.
Hjúkrunarskóli íslands og Háskóli ís-
lands brautskrá hjúkrunarfræðinga.
Hámið í þeim fyrrnefnda tekur þrjú ár
en hinum fjögur, lýkur nemandi þar
S. prófi í hjúkrunarfræðum.
. Við snerum okkur til Hjúkrunarskóla
Jslands og fengum eftirfarandi upplýs-
in9_ar um námið þar:
Árlega eru teknir 60-70 nemar í
skólann. Margar umsóknir berast og
^omast færri að en vilja. Þeir sem hafa
stúdentspróf ganga fyrir en lágmark er
aö hafa minnst 3 ár í mennta- eða
fjölbrautaskóla að baki. Æskilegt er að
nýnemar hafi góða undirstöðu í efna-
fr®ði, stærðfræði og tungumálum, því
fiestar kennslubækurnar eru á erlend-
Urn málum.
Hjúkrunarskólinn starfar í 9 mánuði
a ári. Áður var það þannig að hann
starfaði allt árið og unnu nemendur þá
^eð og voru á launum. Nú eru þeir
iaunalausir og eiga sumarfrí.
Heimavist er í Hjúkrunarskólanum og
komast yfirleitt allir nemendur hans þar
að. Ekkert mötuneyti er en hægt er að
fá matarkort keypt í mötuneyti Land-
spítalans sem er þar skammt frá.
Að loknu hjúkrunarfræðinámi er
hægt að fara í framhaldsnám hér á
landi og taka fyrir sérgrein, t. d. geð-
hjúkrun, skurðstofuhjúkrun, heilsu-
verndarhjúkrun o. fl.
Umsóknarfrestur um nám í Hjúkrun-
arskóla íslands er til 10. júní ár hvert.
- E. I.
Fiðrildið
Hérna sjáið þið mynd af fiðrildi, sem
9etur flogið, en sem tiltölulega auðvelt
er 3ð búa til. Efnið sem þið notið eru
fveir ávalir tappar (það svarta á
^Vndinni), 4 smáspýtur, um 15
Sentimetra langar, þunnt paþpaspjald,
gúmmí-teygja og ofurlítið af stálvír, - allt
Sv° létt sem hægt er að fá það. Sþýturn-
ar (1, 2, 3 og 4) eru yddar og stungið í
faPpana eins og myndin sýnir. Stálvírs-
sPotta, sem er krókbeygður í annan
endann, er stungið gegnum efri tapp-
ann og gegnum perlu þar fyrir ofan, til
þess að fyrirbyggja að loftskrúfan núist
við tappann. í neðri tappann er líka
festur krókur úr vír og gúmmíteygja fest
milli krókanna. Nú er grindin tilbúin.
Vængirnir eru úr þunnum pappa og
hafa þá lögun, sem myndin sýnirog eru
saumaðir á sþýturnar. Mótorinn, eða
réttara sagt teygjan, er þanin með því
að snúa loftskrúfunni, en hún er úr
þunnu blikki.
49