Æskan - 01.09.1986, Page 18
Smásaga barnanna
Hvar sefur sólin?
Einn dag smíðuðu Inga Dís og
Siggi Palli sér fínt hús. Þau ætl-
uðu alltaf að eiga heima í
húsinu.
En þegar dagurinn var liðinn
hvarf sólin bak við fjallið.
— Hvert fór sólin? spurði Inga
Dís. — Mér er kalt.
— Kannski er hún farin að sofa,
sagði Siggi Palli, — eða kannski
er hún farin í ferðalag til út-
landa eins og amma og afi.
— Hvernig kemst hún til út-
landa? spurði Inga Dís.
— Með flugvél, sagði Siggi Palli.
— Nei, það er ekki hægt. Flug-
vélin bráðnar af því að sólin er
svo heit, sagði Inga Dís.
— Hvernig kemst hún þá?
spurði Siggi Palli.
— Við skulum hlaupa heim og
spyrja mömmu.
eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur
— Mamma, mamma! Hvert fór
sólin? kallaði Inga Dís.
— Við viljum fá hana aftur svo
að við getum verið lengur í
kofanum.
— Jörðin okkar hreyfist, sagði
mamma. Meðan við sofum er
dagur hinum megin á hnett-
inum.
Mamma sýndi þeim líka hnatt-
líkan. Hún sneri því og kveikti á
lampa sem hún lét lýsa á það.
— Hérna er Kína og hérna er
Afríka, sagði hún.
— Ég vil fara til Kína, sagði
Siggi Palli.
— Ég vil fara til Afríku og sjá
ljón og tígrisdýr, sagði Inga Dís.
— Hver veit nema þið eigið það
eftir? sagði mamma.
— En nú er komið kvöld og mér
sýnist þið vera orðin þreytt.
Þegar þið eruð búin að borða og
þvo ykkur skal ég lesa fyrir ykk-
ur sögu um krakka sem eiga
heima hinum megin á jörðinni,
krakka sem eru að vakna núna
við það að sólin skín inn um
gluggann þeirra.
Inga Dís og Siggi Palli flýttu sér
í háttinn. Og þegar mamma var
búin að lesa söguna bað Siggi
Palli hana um að draga frá
glugganum. Hann langaði til að
láta sólina vekja sig snemma.
— Ég ætla að sofna strax, sagði
Inga Dís. — Ég ætla að vakna
löngu á undan sólinni. Ég ætla
að sjá þegar hún kemur yfir
fjallið.
Mamma dró frá glugganum.
Svo breiddi hún betur yfir litlu
smiðina sína sem nú voru á leið
inn í draumalandið og kyssti þa
og bauð góða nótt.
18