Æskan - 01.09.1986, Blaðsíða 37
V erðlaunasamkeppni__________
Æskunnar, Rásar 2 og Flugleiða
Skilafrestur
Nú styttist skilafresturinn í stór-
glcesilegri verðlaunasamkeppni
Æskunnar, Rásar 2 og Flug-
^iða. Hann er til 10. desember
nk. Eins ogfram kom í síðasta
tölublaði er keppnin tvíþœtt,
annars vegar smásagnasam-
keppni og hins vegar umferðar-
Setraun. Auðvitað rœðurþú
hvort þú freistar gæfunnar í
hvorri tveggja keppninni eða
hara annarri. Allir, sem eru
yngri en 17 ára, geta orðið þátt-
takendur. Smásögur og lausnir
v‘ð umferðargetraun sendist til:
Æskunnar,
pósthólf 523,
121 Reykjavík
Smásagnasamkeppnin
Rétt er að rifja upp aðalatriðin frá
^’ðasta blaði. Söguefni er frjálst. Notið
"ugmyndaflugið og látið ykkur detta
eitthvað í hug! Þetta getur verið ævin-
týrasaga, ferðafrásögn, spennusaga
eða saga sem gerist í raunveruleikan-
um. Æskileg lengd sagnanna er frá
einni vélritaðri síðu til fimm - eða
tvær til tíu handskrifaðar. Það gerir
ekkert til þó að þær verði aðeins fleiri,
þið hafið það sjálf í hendi ykkar. Látið
hugann reika og byrjið svo!
Verðlaunasagan verður birt í Æsk-
unni og flutt á Rás 2. Einnig mun
Æskan birta nokkrar þeirra sagha sem
fá aukaverðlaun.
llmferðargetraunin
í síðasta blaði birtum við ellefu
spurningar um umferðarmál. Sumar
þeirra voru erfiðar og ef til vill hafið
þið orðið að giska á rétt svar. Þeir sem
lásu textann vandlega hafa séð að bent
var á að svör við nokkrum spurning-
anna mætti finna í blaðinu á undan, -
6. tbl. Þar er nefnilega sagt frá könnun
sem Umferðarráð gerði í samvinnu við
lögreglu síðastliðið sumar. Þeir sem
enn eiga eftir að skila lausn í Umferð-
argetrauninni geta því haft þetta á bak
við eyrað.
Þú þarft ekki að klippa spurningar
út úr blaðinu frekar en þú \ált. Þér
nægir að skrifa númer spurninganna á
blað og þann bókstaf sem þú kýst sem
svar. Dæmi: 12-b, 13-c, 14-d. Þetta er
mjög fljótlégt og þú þarft ekki að
skemma blaðið þitt. Síðan sendir þú
Æskunni lausnirnar fyrir tilsettan tíma
- ásamt nafni, heimilsfangi og aldri.
Allir yngri en 17 ára mega taka þátt í
keppninni hvort sem þeir eru áskrif-
endur eða ekki. Foreldrar mega gjarn-
an hjálpa! Þeir mega hins vegar ekki
hjálpa í smásagnasamkeppninni.
Hveijir verða hinir
heppnu?
Það er stóra spurningin! í Morgun-
þætti Rásar 2 á Þorláksmessudag, 23.
desember nk. verður tilkynnt hver hafi
orðið hlutskarpastur í smásagnasam-
keppninni og dregið verður út nafn
vinningshafans í umferðargetrauninni.
Hvor um sig hlýtur helgarferð með
Flugleiðum til Stokkhólms næsta vor.
Þar verður margt gert til skemmtunar,
m.a. farið í Skansinn og tívolíið, sigl-
ingu og fleira. Æskan mun fylgjast vel
með ferðum vinningshafanna og birta
myndir og frásögn ferðalanganna þeg-
ar þeir koma heim aftur.
Auk aðalverðlaunanna verða veitt
15 bókaverðlaun í hvorri tveggja
keppninni.
Gleymið ekki að láta aldur ykkar
fylgja sögum og lausnum. í smásagna-
samkeppninni verður vissulega tekið
tillit til aldurs höfundanna. Það er ekki
hægt að ætlast til að 8 ára barn skrifi
jafngóða sögu og 15 ára. Dómnefndin
metur hverja sögu eftir aldri höfundar.
Allar nánari upplýsingar um keppn-
ina er hægt að fá á ritstjórn Æskunnar,
sími 10248. Gangi ykkur vel!
37