Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1986, Page 8

Æskan - 01.11.1986, Page 8
Prinsessudraumurinn varð að veruleika! Pað er hverju orði sannara að Hólmfríður Karlsdóttir, 23 ára Ijóska úr Garðabæ, varð bœði landsfrœg og heimsfrœg á einni nóttu þegar hún var kjörinfeg- ursta kona heims í Bretlandi í fyrra. Milljónir manna um víða veröld fylgdust með krýningu hennar í beinni sjónvarpsútsend- ingu og enn einu sinni hafði nafn íslands komist á spjöld sögunn- ar — og íþetta sinn hvorki fyrir þorskastríð né bókmenntir held- urfegurð! Að sjálfsögðu er fegurðar- drottningin glœsileg og aðlað- andi. Hún erfóstra að mennt og svo skemmtilega vill til að tign þessari fylgir að starfa talsvert í þágu nauðstaddra barna, heim- sœkja þau og aflafjár handa þeim. Það átti því vel við Hólm- fríði að inna þetta starf af hendi í rúmt ár. Þegar Hófí var beðin um eiginhandaráritun gaf hún fólki þessa mynd af sér. Hún var prentuð í þúsundum eintaka. I síðasta mánuði krýndi Hófí, eins og hún er oft kölluð, arftaka sinn og er alkomin heim. Hún hefur hafið starfað nýju á barnaheimili Vífilsstaðaspítala. Viðburðaríkt ár er að baki, löng og ströng ferðalög um þveran og endilangan hnöttinn, ótal blaða- viðtöl ogfjöldi góðgerðasam- koma og tískusýninga. En hvað finnst henni um þetta allt sam- an? Æskan rœðir við hana um það og margtfleira í viðtali sem fer hér á eftir. Hólmfríður Karlsdóttir og „börnin hennar" á dagheimilinu. Starfað í þágu barna „Þetta var svo einstök lífsreynsla að ég verð örugglega lengi að vinna uf þessu öllu saman,“ segir Hófí þeSur blaðamaður spjallar við hana á köld' um nóvembermorgni heima hjá henm „Nei, ég get ekki sagt að ég sé þrey11 eftir þetta ár. Ég reyndi að taka þessu öllu með jafnaðargeði, vann 1 skorpum en átti svo rólega daga 3 milli. Ég á áreiðanlega eftir að sja þetta í öðru ljósi eftir nokkur ár- — Segðu okkur frá starfinu. „Fyrstu mánuðirnir fóru í kynu‘J land og þjóð og ég ferðaðist mikið a því tilefni. Ég vann m.a. fyrir Ferða málaráð og mörg fyrirtæki sem selja vörur sínar erlendis. í byrjun þessa ars hófust svo ferðalögin með Júlíu Mor ey, forseta keppninnar UngffU heimur. Við fórum til margra landa og heimsóttum börn sem þjáðust af ý1115 um sökum. Það var ánægjuiegt a dveljast hjá þeim um stund en dapur Iegt að þurfa að yfirgefa þau og geju ekki gert neitt meira fyrir þau en vi höfðum tök á. Góðgerðasamkomur voru haldnaf til styrktar þessum börnum. Ég fluttl alltaf stutt ávörp og í lok þeirra voru tískusýningar sem ég tók þátt í. Stun um sýndu fegurðardrottningar þeirr3 landa þar sem við vorum með okkur' — Við fórum aldrei til landa þar sed1 ótryggt stríðsástand ríkti. - í stórulU dráttum fólst starf mitt í þessu. Morley-fjölskyldan starfrækir þusS‘! fegurðarsamkeppni, m.a. af hugsj°n' Jtílía heldur því fram að fegurðin e'n h. fi engan tilgang nema fólk notf#r’ sér hana til að vinna að góðum málefn unt. Þess vegna verður Ungfrú heimur aö vera tilbúin til að vinna að áður nefndum málum. Morley-fjölskylða11 hefur staðið fyrir þessari keppni síðan i 1951. Hún stendur jafnframt fyrir. keppninni um Ungfrú England, Wales °g Skotland. Við Júlía Morley kynntumst mjög vel á þessum ferðalögum. Hún var eins og önnur mamma mín. Hún er mjög ákveðin og vinnur starf sitt af miklum dugnaði. Mér hefur oft verið hugsað til þess að það hlýtur að vera erfitt fyrir hana að þurfa að kynnast nýrri stúlku á hverju ári.“ ~ Fórstu aldrei til Afríku? „Jú, ég kom þar við en ekki til að afla fjár. Ég sá í raun aldrei þá staði þar sem neyðin er stærst, t.d. í Eþióp- íu. Hins vegar fannst mér það nógu slæmt hjá þeim börnum sem ég heim- sótti.“ Kom til 27 landa -- Hvað var erfiðast við starfið? „Mér þótti í raun ekkert erfitt nema kannski að þurfa að flytja stutt ávörp á góðgerðasamkomunum. En það vand- ist nú fljótt. Mér fannst hins vegar allt í lagi að ræða við blaða- og sjónvarps- menn, jafnvel þó að sjónvarpið væri með beina útsendingu.“ - Veistu hvað þú komst til margra landa? „Já, ég kom til 27 landa en borgirn- ar eru að sjálfsögðu margfalt fleiri.“ - Krýndirðu margar fegurðar- drottningar á árinu? „Já, á fimm stöðum: Þrjár í Asíu- löndum og svo í Grikklandi og Pól- landi.“ , — Hvernig stöndum við að feg- urðarsamkeppninni hér heima miðað við aðrar þjóðir? „Við erum mjög framarlega á þessu sviði og stelpurnar okkar eru á heims- mælikvarða. Það væri rangt að halda öðru fram. Það er þó eitt sem mér finnst að mætti betur fara. Fyrirtækin þyrftu að gera meira að því að styrkja stelpur sem taka þátt í keppninni, til dæmis með því að gefa þeim fatnað. Það er dýrt fyrir þær að þurfa að borga hann sjálfar, sérstaklega ef þær eiga síðan eftir að keppa erlendis.“ — Fékkstu allan fatnað, sem þú klæddist sem Ungfrú heimur, ókeypis? „Nei, það var ætlast til að ég notaði hluta af laununum mínum til að kaupa mér föt.“ - Fór ekki drjúgur tími í að skipu- leggja þessi ferðalög þín? „Jú, ég fór eftir ákveðinni dagskrá. Við Júlía skipulögðum oft fyrirfram hvernig við klæddumst þegar við þurftum að koma fram á mörgum stöðum á stuttum tíma. Þá röðuðum við öllu vandlega niður í töskur í rétta röð til að flýta fyrir okkur því að oft höfðum við stuttan tíma til að skipta um klæðnað.“ - Kom aldrei neitt óhapp fyrir þig eða leiðinleg atvik? „Nei, ég var blessunarlega laus við hvort tveggja. Þetta gekk alveg eins og í sögu.“ Hólmfríður KarlsdóUir. Uflfrú heimur, í opnuviðtali 8 9

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.