Æskan - 01.11.1986, Blaðsíða 35
ÁHUGAMÁLJÐ MITT
Djassballett
Hrönn Stefánsdóttir 11 ára hefur
mikinn áhuga á djassballett og
œfir tvisvar í viku í Djassballett-
skóla Kollu. Petta er annar vet-
urinn hennar. Hún er ákveðin í
uð halda áfram að œfa og getur
hugsað sér að taka þátt í djass-
ballettkeppni síðar meir. Við
slógum á þráðinn til Hrannar
nýverið til að spyrja hana frekar
um þetta áhugamál hennar. Við
spurðum fyrst hvort það vœri
dýrt að lœra djassballett.
„Já, það er dálítið dýrt,“ svaraði
hún. „Ég þurfti að borga 5.500 kr.
fyrir námskeiðið frá því snemma í
september og til áramóta. En þetta er
þess virði.“
— Með hvaða aldursflokki æfirðu?
„Ég æfi með 9-12 ára. Síðan taka
unglingaflokkarnir við.“
— Æfa margir strákar með ykkur?
„Nei, aðeins einn. Ég get ekki út-
skýrt af hverju þeir eru svona tregir til
að koma í djassballett. Kannski hafa
þeir meiri áhuga á einhverju öðru.“
- Er þessi eini strákur góður
dansari?
„Ég get ekkert sagt um það því að
ég vil ekki dæma um það.“
— Hvernig fara æfingarnar fram?
— Við byrjum alltaf á því að hita
upp í 10 mínútur með þreki og teygju-
æfingum, og síðan er dansað næstu 50
mínútur.“
— Er erfitt að læra djassballett?
„Nei, ekki finnst mér það.“
— Eru margar vinkonur þínar með
þér í þessu?
„Besta vinkona mín æfir með mér.
Svo höfum við eignast marga vini á
æfingunum.“
— í hvaða skóla ertu?
„Ég er í Laugarnesskóla. Það kemur
skólabíll á hverjum degi hingað upp á
Ártúnshöfða þar sem ég á heima til að
sækja okkur. Hverfið er svo nýtt að
það er ekki enn búið að byggja
skólann. Ég var í Árbæjarskóla en
þykir miklu skemmtilegra í Laugar-
nesskóla."
- Áttu önnur áhugamál en djass-
ballett?
„Já, ég fer oft á skíði í Bláfjöllum og
svo æfi ég handbolta einu sinni í viku.“
— Að síðustu: Geturðu gefið okkur
uppskrift að draumaprinsi þínum?
Hrönn hugsar sig um litla stund en
segir svo:
„Hann er meðalhár og með brúnt
hár, brún augu og heitir Siggi. Jú,
hann veit að hann er draumaprinsinn
minn. Allar stelpurnar í bekknum eru
skotnar í honum.“
— Þakka þér fyrir spjallið, Hrönn!
35