Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1986, Blaðsíða 51

Æskan - 01.11.1986, Blaðsíða 51
Niðurstaða úr skoðanakönnun um nuisíksmekk í vetrarbyrjun báöum viö lesendur Æskunnar um aö telja upp fyrir okkur þær tegundir tónlistar sem þeir hafa gaman aö. 404 greiddu atkvæöi. Niö- urstööur uröu sem hér segir: (Innan sviga er prósentutala yfir þá sem tón- listartegundin fer í taugarnar á) GLEÐIPOPP RYTMABLÚS FRAMSÆKIÐ ROKK GÁFUPOPP REGGI' Sálarpopp Ska Bárujárnsrokk Nýrómantík Diskó Djasspopp FHipp-hopp Bræðsla (fjúsjón) Rokk og ról Kántrí Tölvupopp lönarpopp Blús Þjóðlagapopp Pönkrokk Þjóðlagapönk Djass Sýrupopp Nýpopp Fönk 89% (0.0) 67% (0.0) 65% (25) 61% (13) 60% (13) 59% (26) 58% (14) 53% (27) 42% (38) 41 % (28) 40% (39) 36% (50) 33% (52) 31 % (40) 27% (63) 25% (44) 22% (69) 17% (57) 17% (68) 16% (70) 12% (72) 8% (75) 7% (71) 6% (73) 3% (81) Til aö lesa úr þessum tölum er vert aö hafa í huga aö þátttakendur voru á aldrinum 10-15 ára, þar af langflestir 12, 13 og 14 ára. Dræm hrifning af djassi og nýpoppi (nýskapandi popp) sýna t.a.m. að hlustandinn veröur að hafa þroskað músíkeyra til aö njóta þeirra. Fáir unglingar - ef nokkrir - hlusta sér til ánægju á djass án þess að hafa fyrst vanist djasspoppi og/ eöa bræðslu. Eins er þaö meö ný- poppið. Til aö hlusta á þaö sér til ánægju þarf maður helst að hafa van- ist framsæknu rokki. Miklar vinsældir rytmablússins, um- fram t.d. rokk og ról, vekja athygli. Líklega á „ísbjarnar(rytma-)blús“ Bubba rokkkóngs þar hlut að máli. Vinsældir ska músíkurinnar vekja einnig athygli því aö þessi jamaíski léttpoppstíll er tiltölulega lítið þekktur hérlendis. Eflaust hefur fikt Madness með ska taktinn haft sitt að segja. f næstu blööum Æskunnar munum við kynna nánar vinsælustu múslkteg- undirnar skv. þessari skoöana- könnun. Breska rytmablúspoppsveitin Status Quo heyrði lagið „In The Army Now" í Hollandi í fyrra með þarlendum flytjendum. Eftir að hafa komið tveimur tugum sönglaga inn á breska vinsældalistann þóttust piltar skynja að umrætt lag átti mikla möguleika. Þeir hljóðrituðu það í skyndi og gáfu út á plötu. Fyrir bragðið komust Status Quo í fyrsta sæti vinsældalista Rásar 2 og Bylgjunnar. Kominn í herínn (In The Army Now) (Umsjónarmaður þáttarins snaraði á íslensku). í fríi erlendis! Sámur frændi gerir allt sem í hans valdi stendur. Þú ert kominn í herinn! Ó, já, þú ert kominn í herinn! Orð herskráningarstjórans rifjast upp fyrir þér: „Ekkert að gera allan daginn, bara liggja í bælinu.“ Þú ert kominn í herinn! Þú verður hetja nágrannanna. Enginn veit að þú ert alfarinn. Þú ert kominn í herinn! Brosandi út aö eyrum bíður þú eftir aö komast í land en þegar þangað er komið kæra menn sig kollótta. Þú ert kominn í herinn! Handsprengjur fljúga yfir höfði þér. Skot fljúga yfir höfði þér. Þú ert kominn í herinn! Skothríð glymur um miðnætti. Undirforinginn hrópar: „Á fætur og berjist!" Þú ert kominn í herinn! Þú hefur fengið fyrirskipanir um að ráðlegast sé að skjóta undir eins. Fingur þínir eru á gikknum en það virðist vera eitthvað rangt við þetta. Þú ert kominn í herinn! Nóttin fellur á og þú sérð ekki neitt. Er þetta hugarburður eða raunveruleiki? Þú ert kominn í herinn! 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.