Æskan - 01.11.1986, Qupperneq 25
smám saman heilla þjóða - til fólks
af öðru þjóðerni.
Að líkna bágstöddum
Mikill fjöldi fólks hefur helgað líf
sitt þjáðum og þurfandi - og friði í
heiminum. Fátt af því fólki er þekkt,
~ þó eru nokkrir nafntogaðir. Þú
kannast við móður Theresu en senni-
lega ekki vin hennar, Norðmanninn
Olav Hodne. Móðir Theresa hefur þó
tilnefnt hann til friðarverðlauna Nó-
bels í þrjú ár.
„Gefðu manni fisk og hann getur
fastt fjölskylduna í einn dag. Gefðu
honum veiðistöng og hann getur séð
fjölskyldu sinni farborða í framtíðinni.
Ég gef þeim fiskinn, Ólafur gefur þeim
veiðistöngina,“ segir móðir Theresa
um vin sinn.
Sumir þeirra sem vakna til vitundar
um ábyrgð sína hafa unnið þrekvirki.
Sem dæmi um það getum við nefnt
írska tónlistarmanninn Bob Geldof.
Þú þekkir án efa þá sögu. Hann fékk
til liðs við sig margt þekkt fólk úr
starfsgrein sinni. Með tónleikum, sem
sjónvarpað var um allan heim, vakti
það athygli milljóna manna á neyð
fólks í Eþíópíu og safnaði hundruðum
milljóna króna í hjálparsjóð. Tónlist-
armenn hér á landi fetuðu í fótspor
þeirra og íslendingar lögðu sitt af
mörkum eins og oft áður.
Af hverju stríð?
„Pabbi, af hverju er stríð?“ spurði
dóttir mín um daginn. Mér vafðist
tunga um tönn. Stundum reynist erfitt
að svara svo að auðskilið verði.
Ótal margt getur vakið upp deilur -
sem kunna að leiða til átaka, - síðar
stríðs, - jafnvel stórstyrjaldar. Menn
greinir á um margt, aðhyllast mismun-
andi trúarbrögð og stjórnmálaskoðan-
ir. Sumum er ekkert heilagt í óstöðv-
andi valdafíkn. Alvarlegast er þegar
óslökkvandi hatur á kynþáttum eða
trúflokkum býr með slíkum mönnum.
Ef til vill finnst okkur þetta allt fjar-
lægt. En lítum okkur nær. Munum við
ekki eftir deilum við aðra, - hnútu-
kasti — orðum sem betur hefðu verið
ósögð?
„Það er allt annað,“ kannt þú að
hugsa. Já, því er sannarlega ekki sam-
an að jafna. Engu að síður er okkur
hollt að minnast þessarar smækkuðu
myndar. Öll getum við gert betur en
við gerum.
Við skulum leggja okkar af mörk-
um, taka þátt í starfi sem stuðlar að
friði. Og við skulum sýna vilja okkar í
verki í umgengni við aðra.
KH
25