Æskan - 01.11.1986, Page 65
í umsjá dr. Þórs Jakobssonar
í Heimsmetabókinni segir einnig frá
heimilisháttum krókódíla — í kafla
sem kallast „Umhyggjusöm móðir“:
„Krókódílamamma grefur gryfju á
skuggsælli strönd og verpir þar um það
bil 30 eggjum. Svo þekur hún yfir með
grasi og sandi og þjappar öllu vel sam-
an með halanum. Hún víkur naumast
frá eggjunum þá 3 mánuði sem þau
eru að klekjast til að verja þau fyrir
eggjaþjófum. Þegar ungarnir eru til-
búnir að skríða út gefa þeir frá sér
smátíst. Það heyrir krókódílamamma
og kemur undir eins á vettvang til að
hjálpa píslunum sínum upp úr gryfj-
unni“.
Veðurbelgir á
Venusi
þessa nágrannahnattar okkar, frá hita,
raka, vindhraða, ljósi og myrkri.Þar er
sannarlega öðruvísi umhorfs en í loft-
hjúpi jarðar.
Belgirnir entust ekki lengi en til-
raunin var samt talin vel heppnuð og
mikill tæknilegur sigur. Einnig þótti
ánægjulegt hve gott samstarfið var hjá
vísindamönnunum sem tóku þátt í
þessari sögulegu rannsókn. Vísinda-
mennirnir voru frá Bandaríkjunum,
Frakklandi og Sovétríkjunum.
Þið hafið sennilega heyrt um veður-
belgina sem sendir eru upp í loftið til
að mæla hita, raka og vind í háloftun-
um. Víða um heim eru veðurathugun-
arstöðvar sem senda slíka veðurbelgi á
loft nokkrum sinnum á sólarhring. Ein
slík veðurathugunarstöð er á Kefla-
víkurflugvelli. Upplýsingarnar eru
notaðar til að gera kort fyrir stór svæði
sem sýna bylgjur og hreyfingar loftsins
hátt yfir höfði okkar. Út frá þessu er
svo hægt að segja fyrir um veðrið
næstu daga.
En kannski hafið þið ekki heyrt um
veðurbelgina sem komið var fyrir í
lofthjúpi Venusar. Venus er næst-
minnsti hnöttur sólkerfisins og hefur
mikinn lofthjúp og svo þykk ský að
ekki sést í gegn með sterkustu sjón-
aukum.
í júní 1985 fóru tveir belgir héðan af
jörðinni á bólakaf niður í skýjahjúp
Venusar. Þeir voru sendir héðan með
geimfari og voru vísindamenn margra
þjóða að verki. Niðurstöður mæling-
anna, sem unnt var að gera með mæli-
tækjum belgjanna meðan þeir svifu
áfram í andrúmslofti Venusar, voru
kynntar í vísindatímaritum í sumar.
Þar var greint frá undarlegri veröld
Sýningar
í anddyrí Háskólabíós
í vetur verða ýmsar sýningar á hlut-
um úr náttúrunnar ríki í anddyri Há-
skólabíós í Reykjavík. Spjöld með
upplýsingum og fróðleik verða þar
einnig og jafnframt einhver náttúru-
fræðingur, a.m.k. vissa tíma. Það er
Áhugahópur um byggingu náttúru-
fræðisafns sem stendur fyrir sýningun-
um. Oddviti hópsins er Einar Egilsson
en áhugahópurinn hefur unnið mikið
starf til eflingar hugmyndinni um
skemmtilegt Náttúrufræðihús í Vatns-
mýrinni. Lítið inn í Háskólabíó og
fræðist um gróður, dýr o.m.fl.
65