Æskan - 01.12.1988, Blaðsíða 8
Vilborg Halldórsdóttir 9 ára:
Brúðan
Einu sinni var 9 ára telpa sem hét Erla. Erlu langaði afar
mikið í brúðu í jólagjöf, Loks kom aðfangadagur og Erla
beið og beið, Eftir langa mæðu varð klukkan sex og
fjölskyldan fór að borða. Eftir máltíðina hjálpuðust allir
að við að þvo upp og síðan voru pakkarnir opnaðir.
„En hve nú verður gaman! Ég fæ að lesa á pakkana,"
hugsaði Erla.
„Til Erlu - frá mömmu og pabba,“ las hún á fyrsta
pakkanum, Hún losaði um pappírinn í flýti, hún var svo
áfjáð að sjá hvað í honum væri.
Saumakarfe! Erla varð fyrir svo miklum vonbrigðum
að tárin læddist fram.
En þá hringdi dyrabjallan, Halli frændi var kominn
með risa- risastóran böggul. Og viti menn: í honum var
brúða!
Erla kyssti Halla rembingskoss og þrýsti brúðunni fast
að sér.
(Sagan hlaut aukaverðlaun i samkeppni Æskunnar og Rásar ; 19S7)
Jenný Heiða Zalewski 10 ára:
Litla jólatréð
Einu sinni var lítið jólatré. Það stóð í búðarglugga og
enginn vildi kaupa það. Aumingja jólatréð stóð þarna í
glugganum dag og nótt.
En einn morgun gafst jólatréð upp. Og vitið þið hvað
það gerði? Það dansaði og sneri sér í hringi þangað til
það varð ringlað, Fyrsti maðurinn, sem tók eftir því, var
gömul kona og um leið og hún sá það fór hún beinustu
leið inn í búðina. Á meðan gamla konan var að kaupa
litla jólatréð voru konur að skoða það gegnum glugann.
Sumar konurnar voru með börn og þegar litla jólatréð
var tekið úr glugganum orguðu börnin svo að mæður
þeirra áttu fullt í fangi með að hugga þau.
Gamla konan fór heim með tréð og skreytti það
með marglitum kúlum og kertaljósum.
Þegar litla jólatréð var búið að vera í nokkra daga var
farið að setja pakka í kringum það. Jólatréð vissi ekki að
það voru að koma jól. Það var að kafna í pökkum með
alls konar skrauti og það gat varla dansað.
Stundum kom fólk með óþekk börn. Þau voru að
koma með jólapakka og rifust urn að setja þá við tréð.
Þau hentu þeim í það og allt í einu brotnaði ein kúlan.
Þetta fannst litla jólatrénu leiðinlegt og varð sorgmætt.
Gamla konan tók brotin og henti þeim og skammaði
börnin og þau fóru með mömmu sinni. Eftir stutta
stund komu önnur börn. Það voru prúð börn sem
lögðu pakkana varlega við jólatréð og þá varð litla jóla-
tréð glatt aftur.
ÆSKAN