Æskan - 01.12.1988, Blaðsíða 74
Hljómsveitarkynning
Umsjón: Sigurdór Guömundsson, Borgarnesi
Wfh*irtke»s»néa*kte
Ég byrja á því að fjalla dálítið um
æsku söngvara og forvígismanns
Whitesnake, Davíðs Coverdales.
Hann fæddist í Englandi í bæn-
um Saltburn sem er rétt hjá New-
castle - og er 37 ára. Davíð byrj-
aði að syngja þegar hann var 5 ára
og nokkrum árum seinna gat
hann sungið öil vinsælustu lögin í
Bretlandi. Hann segist sjálfur
ekki muna eftir þessu en mamma
hans gerir það.
Tíminn leið og lengi framan af
voru litlar líkur til þess að Davíð
legði sönglistina fyrir sig og lifði á
henni. Á árinu 1973 réðust örlög
hans í þessum efnum. Söngv-
arinn Ian Gillian hætti með Deep
Purple og Ritchie Blackmore
fékk í hendur reynsluupptöku
með stúdent/klúbbsöngvara að
74^~
nafni Davíð Coverdale.
Á þessum tíma var Davíð í
listaskóla sem heitir Listaskóli
„Grænlands“(Greenland Art Col-
lage). Markmið hans var að verða
listkennari en hann söng í
klúbbum til að framfleyta sér.
Nú, síðan gerðist það að honum
var boðið að verða annar tveggja
söngvara Deep Purple ásamt
bassaleikaranum Glenn Huges og
hann þáði það. Hann var strax
ákveðinn í að standa sig vel.
Hann gerði sér ljóst að framtíð
hans gat ráðist af því hvernig
honum tækist til í upphafi. Hann
kynnti sér vel söngstíl ýmissa
frægra söngvara og heillaðist
fljótt af Robert Plant í Led Zepp-
elin og Paul Rodgers í Bad
Company. Þeir áttu eftir að hafa
mikil áhrif á söngstíl Coverdales.
Davíð hefur eftirfarandi að
segja um kynni sín af söng
Roberts Plant:
„Við vorum báðir í sama skóla
og/urðum fyrir svipuðum áhrif-
um. Eini munurinn á okkur er sá
að honum svipar dálítið meira til
Elvis Presleys og Litla Richards."
Davíð er mikið á móti vímu-
efnum. Hann segir:
„Fyrir mörgum árum þegar ég
var lítill og einfaldur strákur var
ég ekki hræddur við nokkurn
skapaðan hlut í lífinu. En þegar
ég óx og vitkaðist varð ég hrædd-
ur við vímuefnin. Það er hörm-
ung að sjá hve grátt þau hafa leik-
ið marga. Mig lángár til'að vára
alla við þeirri eyðileggingu sem
þau valda bæði á líkama og sál.
Þið skulið aldrei prófa að nota
vímuefni, hvaða nafni sem þau
nefnast, hvort sem þau eru talin
veik eða sterk. Margir sem byrja í
„léttvægari“ vímuefnum enda í
þeim sterku. Þetta verður hræði-
legur vítahringur sem erfitt er að
brjótast út úr. Enginn þarf að
neyta vímugjafa! Við njótum lífs-
ins best allsgáð!“
Davíð talar þarna af nokkurri
reynslu því að hann átti við vímu-
efnavandamál að stríða í nokkur
ár. Sem betur fór náði hann sér
upp úr því og í janúar 1978 stofn-
aði hann hljómsveitina Whitesna-
ke. Auk hans voru í henni gít-
arleikararnir Mickey Moody og
Bernie Marsden, hljómborðsleik-
arinn Pete Solley, bassaleikarinn
Neil Murray og trommarinn
^ÆSKAN