Æskan - 01.12.1988, Blaðsíða 39
Ljósm.: Guðmundur Viðarsson
„Við metum mest að vera ígóðum og skemmtilegum félagsskap og hitta krakka sem
hafa svipuð áhugamál og það markmið að tala við Guð og biðja til hans. “
Hann æfir júdó -
hún syngur í hór
- Krakkar á ykkar reki eru stundum
feimnir við að játa að þeir trúi á Guð og
biðji bænir - en er þeim sem taka þátt í
starfi æskulýðsfélaga kirkjunnar strítt á
.því eða þeir litnir hornauga?
„Krakkar grípa stundum til stríðni til
að forðast að tala alvarlega um þessi mál.
En það er engin alvarleg stríðni, hún er
oftast ósköp meinlaus. Margir krakkar
virða þá sem láta hreinskilnislega í ljós
að þeir séu trúaðir - þó að þeir taki ekki
þátt í starfi okkar,“ svara þau.
„Vinkonur mínar kalla félagið stund-
um Nunnufélagið,“ segir Guðbjörg og
hlær. „En það er bara í gamni. Þær vita
vel hvernig félag þetta er.“
- Hafíð þið verið eða eruð í öðrum fé-
lögum eða tómstundastarfi?
„Ég er í Júdódeild Ármanns, hef æft
júdó þrisvar í viku í tvö ár,“ segir Ól-
afur.
- Þú ferð þá létt með að verja þig ef
einhverjir abbast upp á þig. . .
„Ég veit það nú ekki - en við lærum
margt á þessu. Júdó er þó mest iðkað
sem keppnisíþrótt hér á landi.“
- Hefur þú keppt?
„Já, ég tók þátt í móti um síðustu
helgi. Þar voru keppendur frá ýmsum fé-
lögum.“
- En Guðbjörg, hefur þú æft júdó?
„Ne, hei. Ég hef lítið kynnst því. Ég
fór þó til að horfa á mótið um daginn.
Mér finnst það dálítið sérkennileg íþrótt.
Ég hef haft nógu að sinna í félögum sem
tengjast kirkjunni. En ég hef sungið með
skólakór Hólabrekkuskóla frá því um
jólin í fyrra. Ég var líka í kórnum um
skeið fyrir nokkrum árum.“
- Þú ert þá væntanlega í Hólabrekku-
skóla?
„Já, í níunda bekk. Ég stefni að því að
fara í Fjölbrautaskólann í Breiðholti á
næsta ári. Nei, ég hef ekki ákveðið á
ÆSKAN
hvaða braut ég fer eða hvað ég legg fyrir
mig.“
- En Ólafur?
„Ég er í Iðnskólanum, 1. bekk, að
læra trésmíði.“
Við óskum viðmælendum okkar góðs
gengis í lífi og starfi.
Hér á eftir fer kafli úr blaðinu Dellunni
sem áður var nefnt . . .
Ferst llínive?
120.000 manna borg í bráðri hættu?
Sú stórmerkilega frétt hefur borist okkur
til eyrna að borgin Nínive farist eftir 40 daga
ef borgarbúar iðrast ekki.
Borgarstjórinn, Níels Ottó Chily, telur
fulla ástæðu til að taka alvarlega á þessu máli.
„Ég tel að við borgarbúar verðum að taka
höndum saman og snúa frá villu okkar vegar.
Það er kominn tími til að að við förum eftir
boðorðum Guðs.“
- Nú eru kosningar fram undan. Ætlarðu
að gera þetta að baráttumáli?
„Mér fmnst líf borgarbúa mikilvægara en
atkvæði þeirra.“
- fbúum hefur fjölgað mikið hér í Nínive
undanfarna áratugi og framfarir eru hér mikl-
ar. Hefur líferni borgarbúa snúist til verri
vegar?
„Við virðumst vera búin að gleyma að Guð
er til og að hann er leiðtogi okkar. Svo virðist
sem fólk hafi snúið sér út í horn og vilji ekki
ganga veg Guðs. Kannski er það vegna þess
að ekki hefur verið nóg af prestum til að boða
trúna. Næsta skref er því að fá fleiri presta til
starfa og efla starf safnaðanna til að fá fleiri til
að hlusta.“
„Léleg þjónusta hjá hval"
- Jónas höjðar mál á ugga hvalnum
Það var heitt þegar við komum að húsvagni
Jónasar þar sem hann stóð í skugga ofvaxins
grenitrés. Jónas tók vel á móti okkur og bauð
okkur inn. Eftir að hafa drukkið kaffi í rúm-
ar fimm stundir hófum við viðtalið:
- Hvernig leið þér inni í hvalnum?
„Mér leið allvel. Ég spilaði útvegsspilið við
gamlan þorsk sem hvalurinn hafði gleypt.“
- Varðstu ekki hræddur um að sleppa ekki
út?
„Jú. Farsíminn minn var bilaður og ég
náði ekki sambandi við Grænfriðunga. Ég
vissi ekki hvar ég var í heiminum.“
- Hvernig vissir þú hvað tímanum leið?
„Ég taldi bara rifbeinin á klukkutíma
fresti, deildi með þremur og lagði fimm rif-
bein við.“
- Þú hefur höfðað mál á hendur - ja,
kannski ekki hendur heldur ugga hvalnum.
Hvers vegna?
„{ fyrsta lagi: Maturinn var vondur. í öðru
lagi voru rúmin hörð. í þriðja lagi var vont í
sjóinn og verst af öllu var að hvalurinn hafði
hafnað friðunarlögunum og það var ekki
verðstöðvun þarna. Ein ferna af súrmjólk
kostaði 394.98 kr. Svo var ekki til slátur,
hvað þá súr hvalur.“
- Fyrir hvað ætlarðu að kæra hann?
„Fyrir háskalegan akstur og of hraðan og
að gleyma tilkynningarskyldunni."
- Hvað ætlarðu að gera frekar í málinu?
„Klaga í mömmu, pabba, litla bróður,
ömmu og afa, Óla frænda, Gunnu í Kaupfé-
laginu og Grænfriðunga.“
39