Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1988, Blaðsíða 44

Æskan - 01.12.1988, Blaðsíða 44
Brandari Prinsar á hvítum hestum Kæri Æskupóstur! Við erum hér tvær stelpur og erum ástfangnar af tveim strákum sem heita Pórir og Axel. Vonandi sjáið þið þetta, strákar. Þeir voru með okkur á ævintýranámskeiðinu í 4. ílokki, Frostaskjóli. L og R. Kæri Æskupóstur! Eftirlætisstrákurinn okkar er dökkhærður með brún augu og er í 12 ára bekk í Hvassaleitisskóla. Hann er ægilega sætur og fyrsti stafurinn í nafni hans er G. Tvtxr að deyja úr ást. Halló, Æska! Prinsinn minn heitir Gunnar og er 13 ára. Hann dvelst oft á Kirkjubæj- arklaustri á sumrin. Hann er ljós- hærður og æðislega sætur. Ein að deyja úr ást. Æska! Eftirlætisstrákurinn minn er ljós- hærður og æðislega sætur. Hann er bláeygður og 156 sm á hæð. Hann er í 6. bekk en ég í 7. bekk. Hann heitir Björgvin og vinur hans Palli. Ein ástfangin að norðan. Ágæti Æskupóstur! Við erum hér þrjár úr 6. bekk í Seljaskóla. Við viljum byrja á því að þakka fyrir meiriháttar blað. Svo langar okkur að koma á framfæri lýs- ingu á prinsinum okkar. Hann er í 6.-H.R. og er undirforingi í klíkunni Túttunum. Hann er sjúklega sætur með skollitað hár og gráblá augu, í meðallagi hár vexti og ágætur íþrótta- garpur. Þrjár í 6. bekk, Scljaskóla. Hæ, Æskupóstur! Mér datt í hug að senda þér brand- ara. Hann er svona: Maður nokkur sem átti heima við þjóðveginn var spurður hvort bílarnir færu ekki hratt framhjá. Þá svaraði hann: - Njuuuúúúúú! Bless, bless. Lukka (dulnefni). Hvar er Erla? Kæri Æskupóstur! Fyrir nokkru skrifaði stelpa mér bréf og vildi skrifast á við mig en hún gleymdi að skrifa heimilisfangið sitt á bréfið. Hún heitir Erla. Vonandi les hún þessar línur og sendir mér heim- ilisfangið sitt. Amdís Hildur. Þakkir fyrir viðtal Elsku, besta Æska! Ég þakka kærlega fyrir viðtalið sem birtist við Stuðkompaníið í sum- ar. Þið hefðuð gjarnan mátt láta lím- miða og veggmynd af hljómsveitinni fylgja með blaðinu. En kannski verð- ur það síðar? Ég legg til að Örvarr Atli, Karl eða Grétar Örvarssynir verði næstir í þættinum Aðdáendum svarað (það er frábær þáttur!) Jæja, hvað lesið þið úr skriftinni? Karlotta María Leósdóttir 11 ára, Þjórsárgötu 3, 101 Reykjavík. Svar: Rithönd þín bendir til þess að þú sért mjög þroskuð miðað við aldur, hugmyndarík og getir veríðföst fyrir ef því er að skipta (svolítið þrjósk). Kveðja Hæ, kæra Æska! Ég vil senda kveðju til stelpnanna sem æfa með mér fimleika. Þær heita Steinunn, Svana, Laufey, Eva Dögg og Ragga Dís. Einnig fær Helga Huld kveðju en hún er komin í annan hóp. Með fyrirfram þökk fyrir birting- una, Þórey. 12 ára og ástfangin Kæri Æskupóstur! Ég er alveg ofsalega ástfangin af strák. Við höfum verið saman en nú er hann allt í einu hættur að tala við mig í samkvæmum og talar bara við aðrar stelpur. Hann situr í tveggja kílómetra fjarlægð frá mér! Ég er hreinlega að deyja úr ást en veit ekki hvernig ég get unnið hylli hans aftur. Við erum bæði 12 ára. Hvað ráðleggurðu mér? Ein að deyja. Svar: Ef hann forðast að vera í nálœgð þinni getur það bent til þess að hann hafi ekki lengur áhuga á þér eða finnist þú vera ágeng. Önnur skýr- ing gœti verið sú að þú hafir ein- hvem tíma móðgað hann og hann sé sár við þig þess vegna. Ef þú œtlar að reyna að vinna hylli hans aftur verðurðu líklega að breyta fram- komu þinni við hann. Þar sem við þekkjum þig ekki vitum við í raun ekki hverju þarf að breyta. Gœttu þín bara á því að vera ekki ágeng! Reyndu að vera glaðlynd og skemmtileg án þess þó að ofleika. Reyndu að dylja að þú sért „sjúk- lega“ hrifin af honum. Sumum strákum leiðist þegar stelpur ganga með grasið í skónum eftir þeim í margar vikur. Sumum veiðimönn- um þykir ekkert gaman að glíma við auðvelda bráð! Hugleiddu það. 44 ÆSKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.