Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.12.1988, Qupperneq 35

Æskan - 01.12.1988, Qupperneq 35
Viðtal við Steinarr Kæra Æska! Getur þú gert mér þann greiða að birta viðtal við Steinarr Ólafsson, einn af aðalleikurunum í Foxtrot? Ég dái hann mjög eftir að ég sá myndina. Magga. Kæri Æskupóstur! Ég sá myndina Foxtrot nýlega og hreifst mikið af einum leikaranum þar. Ég man ekki hvað hann heitir en hann lék Tómas, bróður Kidda. Mér finnst hann mjög góður leikari og langar m.a. til að vita hvort hann hef- ur leikið í fleiri myndum. Getið þið tekið viðtal við þennan leikara? Ég vona að bréfið verði birt því að ég hef aldrei skrifað ykkur áður. Ég varð áskrifandi fyrir skömmu. - Kær kveðja. Bedda B. Svar: Bestu þakkir fyrir bréfin. Tillög- um ykkar hefur verið stungið í hug- myndabankann. Tll skáta Kæra Æska! Viltu vera svo góð að birta þetta bréf frá skátunum á Raufarhöfn. Okkur langar mikið til að komast í bréfasamband við aðra skátaflokka á landinu, bæði stráka og stelpur á aldrinum 9-14 ára. Við erum stúlkna- flokkur á aldrinum 10-13 ára og svör- um öllum bréfum. Ef einhverjir vilja skrifa okkur er heimilisfangið: Úmpalúmpamir, Grunnskólanum, 675 Raufarhöfn. Bestu þakkir fyrir birtinguna. Vantar pennavini í Bandaríkjunum Kæra Æska! Ég er í dálitlum vandræðum. Mig langar til að eignast pennavini í Bandaríkjunum en veit ekki hvaða blöðum ég á að skrifa. Geta einhverjir lesendur Æskunnar gefið mér upp heimilisfang bandarískra blaða sem þeir hafa skrifað til með óskum um pennavini? Nafn mitt og heimilis- fang: Aðalheiður B. Ottósdóttir, Stekkjarhrauni 19, 220 Hafnarfirði. - S. 53040. Svona er draumaprinsinn minn! Halló, Æskupóstur! Mér datt í dug að senda ykkur þessa mynd af draumaprinsinum mínum. Hann er alveg frábær, sætur og skemmtilegur. Hann er í meðal- lagi hár, svolitlu hærri en ég og einn- ig eldri. Hann á heima á Akureyri. Ég ákvað að reyna að hressa upp á stelpurnar í Reykjavíkurstressinu og þess vegna sendi ég myndina. Um leið langar mig til að biðja rit- stjóra Æskunnar um mikinn greiða. Látið einhvern tíma veggmynd af Di- re Straits og Bryan Adams fylgja blaðinu. Pað yrði æði! - Að lokum er ég hér er ég svo með brandara. Vitið þið af hverju Jóna vildi ekki láta jarða manninn sinn? Ha, nei. Nú, hann var ekki dáinn! Stelpa á Árskógsströnd Vinkonan farin Kæri Æskupóstur! Ég á í vandræðum með vinkonu mína. Hún er oft skemmtileg en und- anfarna daga hefur hún verið hræði- leg við mig. Hún hefur verið með annarri stelpu í viku og lætur sem hún sjái mig ekki. Þetta hefur komið fyrir áður en þá kom hún skríðandi til mín þegar þessi stelpa byrjaði að stríða henni. Hvað á ég að gera? Ég þoli ekki að bíða eftir að hún komi aftur til mín. Mér finnst oft sem að hún sé að nota mig. Ég á mjög erfitt með að eignast vini því að ég er svo feimin. Ein einmana stúlka. Kcera einmana! Það er greinilegt á bréfinu að þér finnst dálítið til þessarar vinkonu þinnar koma enda er hún kannski eini vinur þinn. Því er skiljanlegt að þú takir nœrri þér að þið séuð hcettar að vera saman. Hins vegar áttu fárra annarra kosta völ en að bíða og sjá hvað vinkona þín gerir. Það er í raun hennar einkamál með hverjum hún er og hvemig hún ver tómstundum sínum. Það sama má segja um þig. Þú gœtir leitað að nýrri vinkonu ef þér byði svo við að horfa og gcetir slitið sambandi við hvaða vinkonu sem er. Þú myndir alls ekki láta segja þér fyrir verk- um. Það er ekki ósennilegt að vinkona þín eigi eftir að koma „skriðandi“ á hnjánum aftur til þín - eins og þú talar um að hún hafi áður gert. Þú skalt þá taka henni vel því að þrátt fyrir allt virðist hún kunna best við þig. Það er mikil viðurkenning fyrir þig. Ef þér leiðist biðin eftir henni geturðu svo sem reynt að tala við hana um vináttu ykkar, spyrja hana hreinskilnislega að því af hverju hún sé hœtt að tala við þig, hvort þú hafir gert eitthvað á henn- ar hlut. Ekki er gott að vera eigin- gjöm og gera kröfu til þess að hún hcetti að vera með hinni stelpunni og byrji aftur að vera með þér. Reyndu að vinna traust hennar hcegt og bítandi. Ef til vill getur þú spurt hvort þú megir verða vinkona þeirra beggja? Gcettu þess bara að vera kurteis við vinkonu þína og láttu hana finna að þér þyki vœnt um hana. Það er líklegast til að bera góðan árangur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.