Æskan - 01.12.1988, Síða 14
Geröi sér vonir um 5. sæti.
Kom sjálfri sér á óvart með
vinna Feguröarsamkeppni
íslands.
Sævar 13 ára. Svo vill til að Sævar var
kjörinn „Herra Vopnafjarðarskóli“ í
samnefndum skóla í fyrravetur þannig
að fegurðin virðist liggja í ættum. Þegar
búið er að telja upp systkini fegurðar-
drottningarinnar er ekki úr vegi að nefna
tíkina hennar, Doppu. Hún er 8 ára og í
miklu dálæti hjá henni, svo miklu að
hún sefur alltaf til fóta hjá henni þegar
hún er heima.
í fyrrasumar vann Linda nokkrar vik-
ur á hótelinu á Vopnafírði en að öðru
leyti fór tíminn í að undirbúa sig vel fyr-
ir keppnina í Englandi. Hún hefur geng-
ið til margra starfa í heimabyggðinni,
unnið í sjoppu, frystihúsi og við að mála
togara. Henni fínnst mjög gaman að vera
á Vopnafírði á sumrin en heldur lítið um
að vera þar yfir veturinn enda fara flestir
vinir og kunningjar til annarra staða að
sækja sér framhaldsmenntun.
Þannig byrjaði það
allt saman
Linda sótti námskeið hjá Karon-sam-
tökunum og var eftir það boðið að ganga
í þau. Kona, sem starfar hjá samtökun-
um, sá að hún hafði flest til að bera til
að vera gjaldgeng í fegurðarsamkeppni
og vakti athygli dómnefndar á henni.
Það má því segja að hún eigi nokkra sök
á því hvernig komið er.
Það var fíarri huga Lindu að ætla sér
að taka þátt í fegurðarsamkeppni og
þurfti að ganga allmikið eftir henni til
þess. Hún lét tilleiðast um síðir og titl-
arnir hlóðust á hana. Hún varð ungfrú
Austfíarða og ljósmyndafyrirsæta Aust-
urlands. Því næst tók við aðalkeppnin í
Reykjavík þar sem hún var kosin fegurð-
ardrottning íslands, - eins og alþjóð veit
- og nú síðast fegursta stúlka heims.
Lengra er víst ekki hægt að komast í
heimi þar sem fegurð er metin til stiga.
í keppninni um fegurðardrottningu
íslands gerði Linda sér vonir um að
komast í 5. sæti en datt aldrei í hug að
sigra. Hún vissi fyrir fram að þrem efstu
stelpunum yrði m.a. boðið að fljúga til
Bandaríkjanna og fyrsta hugsun hennar
- þegar nafn hennar var nefnt - var að
nú gæti hún heimsótt „fósturforeldra“
sína í Minnesóta.
Framtíðardraumar
Lindu dreymir margt um framtíðina.
Hana langar mest til að verða löggiltur
skjalaþýðandi eða venjulegur þýðandi.
Einnig gæti hún hugsað sér að verða leið-
sögumaður í útlöndum á sumrin enda
eru ferðalög meðal aðaláhugamála henn-
ar. Auk þess hefur hún áhuga á útivist,
gönguferðum, hjólreiðum og bókmennt-
um. Hún hefur mest dálæti á Shake-
speare. Um tíma starfaði hún mikið með
ungtemplarafélaginu á Vopnafírði en það
er félagsskapur ungs fólks sem vill stuðla
að vímulausum heimi, þ.e. að fólk
skemmti sér án vímuefna, svo sem
áfengis.
En hvers konar manngerð er Linda?
Af viðtölum í blöðum við vini hennar og
14
ÆSkAN