Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1988, Síða 15

Æskan - 01.12.1988, Síða 15
vandamenn má ráða að hún sé hógvær, trygglynd og vönd að virðingu sinni. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd, ákveðin og föst fyrir. Hún setur markið mátt og nær markmiðum sínum með þrautsegjunni. Hún er sögð skemmtileg og félagslynd - og sólgin í sælgæti! Hún er ætíð snyrtileg til fara án þess þó að elta nýjasta tískufatnaðinn hverju sinni. Kynntust á hótel Borg Kærasti Lindu heitir Eyþór Guðjóns- son og er úr Kópavogi. Hann er nem- andi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og brautskráist sem stúdent þaðan í þess- ÆSKAN^= ^ um mánuði. Hann var dyravörður á Hót- el Borg þegar þau kynntust. Hann hefur sagt svo frá fyrstu kynnum þeirra í blöð- um að hann hafí verið í óvenju góðu skapi eitt kvöldið og boðið Lindu og vin- konu hennar sælgæti. Þau töluðu saman nokkra stund og hann bauðst til að aka þeim heim eftir ballið - og stóð við það. Stuttu seinna höfðu þau samband og urðu par upp úr því! Já, oft geta einföldustu atriði í lífinu eins og að þiggja sælgæti úr hendi ein- hvers eða ganga í sakleysi sínu í sýning- arsamtök skipt sköpum! Og nú er þessi glæsilegi fulltrúi ís- lenskrar þjóðar komin á þeysireið um heiminn til að vekja athygli á góðum málstað. Júlía Morley, forseti fegurðar- keppninnar, segir þegar keppnin er gagnrýnd að fegurð sé einskis virði ef hún sé ekki nýtt í þágu góðs málstaðar. Það er sem sé ekki nóg að stúlkurnar, sem bera titilinn, séu fallegar. Þær þurfa að vera greindar, geta komið vel fyrir sig orði og ekki síst að hafa skilning á því starfi sem þeim er ætlað að inna af hendi. Linda Pétursdóttir hefur verið kjörin Ungfrú heimur af því að hún hefur þetta allt til brunns að bera. Æskan óskar henni góðs gengis í nýja starfinu og hlakkar til að taka hana tali SÍðar. (Helsiu heimildir: Ýmis blöð og tímarit sem birt hafa greinar og viðtöl við Lindu) 15

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.